LANDMARK kynnir: Fallegt og vel skipulagt 5 herbergja, 161,2 fm parhús með bílskúr á einni hæð á góðum stað í Borgarnesi. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu. Stór verönd sunnan og vestan meginn við hús og tyrfð baklóð. Steypt bílaplan. Íbúðarrými 131,4 fm og bílgeymsla 29,8 fm.Forstofa er flísalö...
Sýna meira
LANDMARK kynnir: Fallegt og vel skipulagt 5 herbergja, 161,2 fm parhús með bílskúr á einni hæð á góðum stað í Borgarnesi. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu. Stór verönd sunnan og vestan meginn við hús og tyrfð baklóð. Steypt bílaplan. Íbúðarrými 131,4 fm og bílgeymsla 29,8 fm.Forstofa er flísalögð með fataskáp. Innangengt úr forstofu í bílskúr. Inn af forstofu er alrými með aukinni lofthæð þar sem eru stofa, borðstofa og eldhús. Harðparket á stofu og flísar á eldhúsi sem er með fallegri hvítri innréttingu ásamt eldhúseyju. Útgengt út á verönd úr borðstofu. Svefnherbergin eru öll með harðparketi á gólfi með fataskápum. Nýlegur fataskápur með rennihurðum í hjónaherbergi og þaðan er útgengt út á lóð. Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu, sturtu og baðkari. Þvottahús er innan íbúðar með flísalagt gólf. Bílskúrinn er 29,8 fm með rafdrifnum hurðaopnara og er útgengt út í garð. Lóðin er vel frágengin með timburverönd með skjólvegg og tyrfð baklóð. Bílaplan steypt.Fasteignamat næsta árs: 58.700.000Nánari upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða -------------------------------------------------------------------Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA