Hannes Steindórsson og Gunnar Valsson kynna:
Stórglæsilega 192 fm, sjö herbergja mjög mikið endurnýjaða hæð með sérinngangi, ásamt bílskúr við Stigahlíð 39 Reykjavík.
Eignin var að mestu endurnýjuð árið 2021. Innréttingar, gólfefni, hurðir, gler og gluggar, baðherbergi, vatnslagnir, þak, rafmagn, lýsing, hús að utan ofl.
Mjög gott skipulag, rúmgóðar og stórar stofur, fjögur til fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi ásamt gestasalerni, hiti í gólfi, vandaðar innréttingar frá GKS, Kvartzsteinn borðplötur frá Rein, stórir gluggar, fiskibeina parket. Lýsing hönnuð af Lúmex.
Útleigumöguleikar í kjallara, baðherbergi og svefnherbergi.Forstofa: Rúmgóð parketlögð forstofa, innangengt í kjallara.
Svefnherbergi 1: Stórt parketlagt forstofuherbergi.
Gestasalerni: Flíslagt gestasalerni innaf forstofu.
Stofa: Rúmgóð og björt parketlögð stofa með útgengi út á svalir.
Borðstofa: Björt parketlögð borðstofa við hlið stofu, stórir gluggar.
Eldhús: Vönduð tæki frá Siemens og Bora, sérsmíðuð
Nobilia innrétting frá
GKS, mikið skápapláss, borðkrókur með barstólum,
Kvartzsteinn frá Rein.Svefnherbergi 2: Parketlagt svefnherbergi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með skápum.
Svefnherbergi 4: Rúmgott parketlagt hjónaherbergi með miklu skápaplássi.
Baðherbergi: Stórt og vandað baðherbergi, baðkar og stór sturta, innbyggð tæki, vönduð innrétting með
Kvartzsteinn frá Rein.
Bílskúr: Tuttugu og átta fm bílskúr með glugga og inngönguhurð, ásamt steyptu bílastæði.
Rafmagn hiti og leigu rafhleðslustöð.
Kjallari: Innangengt úr forstofu.
Svefnherbergi 5: Parketlagt rúmgott svefnherbergi.
Baðherbergi/ Þvottahús: Sér baðherbergi með sturtu ásamt innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Allar upplýsingar veitir: Gunnar Valsson gunnar@fastlind.is s.699-3702Húsið hefur verið mikið endurnýjað síðustu ár þá meðal annars:* Húsið múrað og málað 2018
* Þak endurnýjað og yfirfarið, þakrennur 2016
* Gler og gluggar endurnýjaðir að mestu
* Rafmagn endurnýjað