LIND fasteignasala og Helga Pálsóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega 122.5 m2 jarðhæð í þríbýlishúsi með sérinngangi í mikið endurnýjuðu húsi við Stigahlí 35 í Hlíðunum í Reykjavik. Eignin telur forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús, geymsla innan íbúðar, hol, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Eignin er lítið niðurgrafin.Helstu endurbætur á húsi.
Allar ofnalagnir endurnýjaðar í íbúð.
2019- Rafmagnstafla endurnýjuð.
2021- Endurnýjaðar flasningar á þakkanti og þak yfirfarið
2021- Húsið múrviðgert og málað
2024- Skolplagnir endurnýjaðar undir húsi og milli hæða.Nánari lýsing
Forstofa með flotuðu gólfi og fataskáp með rennihurðum.
Stofa-borðstofa með parketi á gólfi .
Eldhúsið var endurnýjað 2014 með fallegri innréttingu með góðu skápaplássi og ljúflokunum á skúffum, góður tækjaskápur, innbyggð nýleg uppþvottavél, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu, nýlegt Span AEG helluborð með viftuháf yfir, parket á gólfi
Þvottahús með flísalögðu gólfi og hvítri innréttingu frá 2022 þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla með máluðu gólfi og hillum.
Holið er parketlagt.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergin eru tvö með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, ný innrétting með góðu skápaplássi skápum og spegli með lýsingu, sturta , handklæðaofn, upphengt salerni og opnanlegur gluggi.
Kaldur geymsluskúr á lóð í eigu íbúðarinnar. Komið er samþykki fyrir palli fyrir framan hús.
Íbúðin er vel staðsett í þessu vinsæla hverfi miðsvæðis í borginni. Gott göngufæri við skóla, verslanir, þjónustu og útivistarsvæði í Öskjuhlíð og Klambratúni. Næg bílastæði við húsið Húsfélagssgjöldin eru 15.612 kr á mánuði. Engar fyrirhugaðar eða samþykktar framkvæmdir.Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is