Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Stekkjartún 30 íbúð 202 - Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli í Naustahverfi - stærð 85,2 m²
Húsið er steypt og byggt árið 2012.Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Forstofa er með dökkum flísum á gólfi ,tvöföldum skáp og skúffum.
Eldhús er með vandaðri spónlagðri innréttingu með dökkum flísum á milli skápa. Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. Úr eldhúsi er hurð út á steypar 11,6 m² suður svalir. Markísa fylgir með við sölu.
Stofa er með parketi á gólfi og góðum útsýnis gluggum til suðurs og vesturs.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og spónlögðum eikar fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 8,7 og 12,1 m².
Baðherbergi er með dökkum flísum á gólfi og ljósum á hluta veggja, spónlagðri eikar innréttingu, upphengdu wc, handklæðaofni, walk-in sturtu og opnanlegur glugga.
Þvottahús er með dökkum flísum á gólfi og spónlögðum eikar skáp og innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er inn af þvottahúsi. Þar er parket á gólfi og stór opnanlegur gluggi.
Annað- Allar innréttingar og innihurðar er spónlagt með eik og smíðað af Hyrnu ehf.
- Gólfhiti er í öllum rýmum.
- Varmaskiptir er á neysluvatni.
- Hitalagnir eru í stigapalli, stiga og stétt að bílastæði.
- Sameiginlegt geymsluloft er yfir íbúðum á efri hæð, fellistigi er upp á það.
- Sameiginleg geymsla/kyndikompa er undir stigapalli.
- Húsið málað að utan 2023.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.