Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Strandasel 7 - Eignin er efri hæð ásamt 2ja herbergja aukaíbúð á jarðhæð. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og er staðsett á góðum stað innst í botnlanga. Í eigninni eru allt að fimm svefnherbergi og stofur ásamt 2ja herbergja aukaíbúð á jarðhæð. Tvö... Sýna meira
Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu: Strandasel 7 - Eignin er efri hæð ásamt 2ja herbergja aukaíbúð á jarðhæð. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og er staðsett á góðum stað innst í botnlanga. Í eigninni eru allt að fimm svefnherbergi og stofur ásamt 2ja herbergja aukaíbúð á jarðhæð. Tvöfaldur fullbúinn bílskúr.Bókið skoðun hjá Finnboga Hilmarssyni fasteignasala, Lýsing eignarinnar:Komið er inn í anddyri með flísum og fataskáp. Gestasnyrting með flísum á gólfi. Forstofuherbergi/skrifstofa með parketi. Rúmgott hol með parketi. Stórt opið rými sem er stofa, borðstofa og tengist svo eldhúsi. Upptekin loft og parket á gólfum, fallegur arinn. Í eldhúsi er nýleg falleg innrétting, vönduð innbyggð tæki, tveir ofnar og tvær uppþvottavélar. Innaf eldhúsinu eru búr. Svefnherbergisgangur með parketi á gólfi, útgengt út á lóðina. Rúmgott hjónaherbergi með parket á gólfum og fataskáp. Þrjú barnaherbergi með parketi, öll af svipaðri stærð.Íbúðinni fylgir 2ja herbergja íbúð á jarðhæðinni sem er mögulegt að tengja við efri hæðina. Sérinngangur, komið inn í anddyri með flísum. Eldhús og stofa eru i opnu rými. Eldhúsið er með flísum á gólfi, ágæt innrétting með eyju. Stofa með parketi á gólfi. Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fatarými innaf. Geymsla/vinnuherbergi með parketi á gólfi. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, tengi fyrir þvottavél.Bílskúrinn er fullbúinn, tvöfaldur og er steypt stétt fyrir framan. Skemmtileg útiaðstaða er fyrir framan húsið með heitum potti, bæði hellulögð og pallar. Falleg lóð í rækt.Eignin er vel staðsett, innst i botnlanga, þar sem stutt er í skóla og alla helstu þjónustu í Mjóddinni.Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson, fasteignasali, Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.