Borg fasteignasala kynnir til sölu sumarhús við Stangarbraut í Öndverðarnesinu. Húsið skiptist í forstofu, stofu og eldhús í alrými, tvö svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi. Gestahús er tilbúið til innréttinga með geymslu í bakhluta fyrir golfbílinn. Lóðin er gróinn með stóru bílaplani og timburlagðri verönd í kringum hluta húsins. Afgirtur fótboltavöllur með gervigrasi er við húsið. Húsið getur verið laust til afhendingar fljótlega og möguleiki að kaupa innbú með.
Nánari lýsing: Komið er inn á flísalagða forstofu. Stofa og eldhús eru í alrými með flísum á gólfi aukinni lofthæð. Í eldhúsi er hvítlökkuð innrétting með efri og neðri skápum. Úr alrými er gengið út á timburlagðaverönd. Svefnherbergin eru tvö, bæði með flísum. Baðherbergi er flísalagt með innréttingu og sturtuklefa. Þvottahús er flísalagt. Á efri hæð er sjónvarpsloft með parketi með möguleika á að nýta það sem auka svefnrými. Gestahús er tilbúið til innréttinga. Í bakhluta á gestahúsi er geymsla með innkeyrsluhurð fyrir golfbíl.
Lóðin er frágengin með grasflöt og trjágróðri. Timburverönd er í kringum húsið að hluta og fótboltavöllur með gervigrasi.
Skráning samkvæmt Fasteignaskrá er Sumarbústaður 127,3 fm og gestahús 25,0 fm, samtals 152,3 fermetrar.
Húsið stendur á 5000 fermetra leigulóð. Öndverðarnessvæðið er lokað með rafmagnshliði. Inn á svæðinu er 18 holu golfvöllur með golfskála sem hægt er að leigja fyrir mannfögnuði. Sundlaug er á svæðinu sem eigendur húsa á svæðinu hafa aðgang af. Umsjónarmaður starfar á svæðinu og sér um rekstur sundlaugar og snjómokstur.
Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 brandur@fastborg.is hjá BORG fasteignasölu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði