Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Sómatún 11 - Vönduð og vel skipulögð 3-4ra herbergja íbúð með sér inngangi á neðri hæð í fjölbýli í Naustahverfi - stærð 96,7 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu/herbergi og þvottahús.
Forstofa er með flísum á gólfi, ljósum skáp og innfelldri lýsingu. Fyrir framan forstofuhurð er steypt stétt með hitalögnum í.
Eldhús, vönduð innrétting frá Brúnás með Taj Mahal steini á bekkjum og eyju frá S.helgasyni ehf. Ísskápur og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu. Bora helluborð með innbyggðri viftu. Úr eldhús er hurð út á sólpall til suðurs.
Stofa og eldhús eru í opnu rými. Þar er nýlegt ljóst harðparket á gólfum og stórir gluggar til vesturs. Innfelld lýsing er í lofti.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu harðparketi á gólfi og ljósum fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 8,4 og 14,3 m².
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, grárri innréttingu og speglaskáp, upphengdu wc, walk-in sturtu og handklæðaofni. Innfelld lýsing er í lofti.
Geymsla er með flísum á gólfi, ljósum fataskáp, opnanlegum glugga og hurð út á sólpall. Geymsla hefur verið notuð sem svefnherbergi og er skv. teikningum 9,0 m² að stærð.
Þvottahús er til hliðar úr forstofu og með flísum á gólfi. Bekkur með stálvask og ljós innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Rennihurð er inn í þvottahúsið.
Sameiginleg geymsla/kyndikompa er undir stigapalli og tröppum.
Annað- Árið 2024 var lagt nýtt harðparket íbúðina, settar upp nýjar hvítar innihurðar, ný innrétting í þvottahús og nýjir frontar á fataskápa og eldhúsinnréttingu.
- Öll tæki í eldhúsi voru endurnýjuð árið 2024.
- Innréttingar eru frá Brúnás.
- Nýleg (2024) innfelld led lýsing er í helstu rýmum.
- Verönd til suðurs er á baklóðinni, steypt og timbur, einnig er steypt stétt fyrir framan húsið.
- Hitalagnir er í steyptri stétt fyrir framan og í verönd.
- Ljósleiðari er tilbúin til notkunar.
- Búið er að leggja fyrir og setja upp hleðslustöð.
- Húsið var múrviðgert og málað að utan sumarið 2022
- Eignin er laus til afhendingar í september.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.