Borg fasteignasala kynnir eignina Sólvallagötu 29, 101 Reykjavík : Gullfalleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 1.hæð við Sólvallagötu í Reykjavík. Góð lofthæð er í allri íbúðinni og suðursvalir með stiga niður í garð. Íbúðin skiptist í hol, eldhús, tvær stofur (stofu/borðstofu), tvö stór svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Ýmsir möguleikar á að breyta skipulagi eignarinnar þannig að svefnherbergi verði þrjú. Eignin Sólvallagata 29 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-2369, birt stærð 113.4 fm.Nánari lýsing:Anddyri: Komið er inn um parketlagt anddyri.
Stofa og borðstofa: Samliggjandi stofa og borðstofa með nýjum gluggum. Nýlegt harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi / fataherbergi : Er rúmgott, með góðum glugga, harðparket á gólfi. Innangengt í fataherbergi með nýlegum fataskápum. Útgengt út á suðursvalir með stiga niður í garð.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott svefnherbergi, harðparket á gólfi.
Eldhús: Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2019, grá innrétting frá HTH með nýlegum tækjum, innbyggðri uppþvottavél, flísar á gólfi.
Baðherbergi: Mjög rúmgott. Með hvítri innréttingu og góðu skápaplássi. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: 7,3 fm geymsla í sameign.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í sameign.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús í sameign, hver og einn með aðstöðu fyrir eigin vélar.
Framkvæmdir : Íbúðin2026: Sérsmíðaðir eikarþröskuldar settir á alla íbúðina
2025: Nýtt harðparket lagt á íbúð (fyrir utan eldhús og baðherbergi). Fataherbergi með nýjum fataskápum útbúið inn af hjónaherbergi
2024: Nýjar hurðar innan íbúðar
2023: Nýr vaskaskápur og vaskur á baðherbergi
2022: Nýir og vandaðir rofar og tenglar á alla íbúð - dimmer í stofu og borðstofu. Tengi fyrir þvottavél leitt upp í íbúð. Nýr þrýstijafnari fyrir ofnakerfi
2019: Eldhús endurnýjað að fullu - innréttingar frá HTH, vaskur og blöndunartæki, innbyggð uppþvottavél, gólf- og veggflísar
Húsið2025: Skólp- og frárennslislagnir fóðraðar. Dren yfirfarið.
2022: Samtengdir reykskynjarar settir upp á öllum hæðum í sameign
2021: Stigagangur málaður
2020: Húsið steypuviðgert og málað að utan. Skipt um þakjárn og pappa. Skipt um alla glugga á 1. hæð og í sameign og geymslum í kjallara
2014: Ný rafmagnstafla í sameign.
Um er að ræða einstaklega fallega og vel staðsetta eign í gamla Vesturbænum nálægt Miðbænum. Eignin er í göngufæri við grunnskóla, leikskóla og almenna þjónustu.Nánari upplýsingar veitir Börkur Hrafnsson Lögg. fasteignasali, í síma 8924944, tölvupóstur borkur@fastborg.is.
Með undirritun sinni á þetta söluyfirlit staðfestir seljandi/seljendur að efni þess sé rétt samkvæmt hans/þeirra bestu vitund. Kaupandi/kaupendur staðfestir/staðfesta með áritun sinni á þetta söluyfirlit að hann/þeir/þau hafi kynnt sér efni þess.