Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu. Virkilega snyrtilegt og vel við haldið, 146,3 fm, fjögurra herbergja parhús við Sóltún 16 á Selfossi. Húsið er byggt úr timbri árið 2002, klætt með sléttstení og á þaki er járn. Stór sólpallur með skjólgirðingu og geymsluskúr. Stórt hellulagt bílaplan. Húsið stendur á eignarlóð í botnlangagötu, miðsvæðis á Selfossi.Nánari lýsing: Flísalögð forstofa með stórum fataskáp. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, fataskápar í þeim öllum. Stofa og borðstofa í opnu og björtu rými, með uppteknu lofti þar sem er útgengt út á sólpall með skjólgirðingu. Eldhús, spónlögð eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, vönduðum heimilistækjum og flísalagt er á milli borðplötu og efri skápa. Snyrtilegt baðherbergi, innrétting, handklæðaofn, flísalögð "walk in" sturta, wc og baðkar. Í miðrými hússins er sjónvarpshol. Innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi en þar er nýleg innrétting. Snyrtilegur bílskúr með uppteknu lofti, geymslulofti og innst í honum er geymsla. Gönguhurð er úr bílskúr út í bakgarð.
Virkilega falleg eign.
Hringið og bókið skoðun.
Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir" Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan HÚS því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.