NÝTT Í SÖLU - SÓLHEIMAR 42. STÓRGLÆSILEG NEÐRI SÉRHÆÐ MEÐ BÍLSKÚR Á FRÁBÆRUM STAÐ Í AUSTURBÆNUM. Pantið skoðun hjá Ingólfi Gissurarsyni lg.fs. í síma 896-5222 eða Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Ingólfur Gissurarson löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, síðan 1... Sýna meira
NÝTT Í SÖLU - SÓLHEIMAR 42. STÓRGLÆSILEG NEÐRI SÉRHÆÐ MEÐ BÍLSKÚR Á FRÁBÆRUM STAÐ Í AUSTURBÆNUM. Pantið skoðun hjá Ingólfi Gissurarsyni lg.fs. í síma 896-5222 eða Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Ingólfur Gissurarson löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, síðan 1989, sími: 896-5222, kynna: Stórglæsileg nær algerlega endurnýjuð neðri sérhæð ásamt bílskúr í mjög góðu fjögurra íbúða húsi á frábærum stað í Austurbæ Reykjavíkur. Eignin er alls 187,4 fm (158,5 fm hæðin og 28,9 fm bílskúr) og er staðsett við Sólheimabrekkuna sem er opið grænt svæði. 4 svefnherbergi. Örstutt í alla þjónustu og verslun í Skeifunni, alla helstu skóla, Laugardalinn, Elliðaárdalinn og fl. Húsið er hannað+teiknað af Hannesi Davíðssyni arkitekt (Kjarvalsstaðir). Eignin er nýlega uppgerð nær alveg að innan. Húsið var standsett að utan 2020 og er í góðu viðhaldi. Nýlegt glæsilegt eldhús, baðherbergi, gólfefni, skápar, rafmagn og fl. SKIPULAG: Forstofa með hurð að sameign. Hol með fallegum rennihurðaskáp. Gestasnyrting inn af holi. Svefnherbergisálma: Baðherbergi (endurnýjað 2021) flísalagt með walk inn sturtu, hvítri innréttingu, gólfhita, upphengdu salerni, handklæðaofni, innfeldum skáp og glugga. Hjónaherbergi með sér fataherbergi inn af þar sem eru nýlegir sérsmíðaðir hvítlakkaðir skápar frá Brúnás. Tvö önnur herbergi í álmunni sem nú eru sameinuð í eitt stórt herbergi (auðvelt að breyta, hurðin er til), útgengt úr herberginu út á góðar 8 fm suður svalir með handriði klætt lerkivið. Inn af holinu er svo stórt herbergi með skápum. Mjög rúmgóð og björt stofa og borðstofa sem er með vegglúgu yfir í eldhúsið. Glæsilegt nýlegt eldhús með góðum borðkrók. Ný glæsileg hvítlökkuð innrétting frá HTH, gott skápapláss m.a. frábærir potta og búrskápar. Vönduð innbyggð ný tæki frá Siemens þ.e. ísskápur, uppþvottavél, bakaraofn og örbylgju+bakaraofn. Flísar milli skápa. Inn af eldhúsinu er rúmgott þvottaherbergi með nýlegri innréttingu frá HTH, skápum með innbyggðum nýjum frystiskáp, vaskur og gluggi. Hurð úr þvottaherberginu yfir í sameignina (stigagang niður á jarðhæð). Rúmgóð nýlega standsett 9 fm geymsla á jarðhæð með hillum og glugga. Sameiginlegt þurrkherbergi sem er heitt herbergi með inntakslögnum / mælum. Innbyggð ruslatunnugeymsla. GÓLFEFNI: Nýlegt glæsilegt parket á öllum gólfum nema nýlegar flísar á forstofu, eldhúsi, baði og þvottahúsi. Eldri retro flísar á gestasnyrtingu. BÍLSKÚR (fjær húsinu af tveimur) er með nýlegri gönguhurð baka til, sjálfvirkum opnara, hita og rafmagni. ANNAÐ: Eftirfarandi eru upplýsingar frá seljendum: Húsið var standsett og málað að utan 2020 og endurnýjaðar þakrennur+niðurföll. Þá var líka gert við glugga og skipt um gler þar sem þurfti, m.a. gler í stofugluggum sem er með vörn fyrir útfjólubláum geislum og hitainnstreymi. Hitalögn er í bílaplani. Útitröppur voru standsettar fyrir ca 6 árum. Garður eru í góðu ásigkomulagi og vel hirtur. Ekki er vitað annað en að þak, pípu- og skolplagnir séu í góðu standi. Nýleg rafmagnstafla er í sameign fyrir allt húsið. Nýlokið er viðgerð á loftræstingu á gestasnyrtingu, og sett vifta á þak. Útihurð nýlega olíuborin og sett sílan á útitröppur 2022. Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari S:896-5222 Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 34 ára samfelldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 896-5222. VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SAMKVÆMT GREININGU CREDITINFO 2015 til 2022, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM OG FYRIRMYNDARFYRIRTÆKI Í REKSTRI SKV, GREININGU VIÐSKIPTABLAÐSINS OG KELDUNAR 2017-2022.