***KOMIN AFTUR Í SÖLU***Alda fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt og vel skipulagt 87,1 m², 3. herbergja íbúð á 11. hæð að Sólheimum 25, 104 Reykjavík. Húsið er byggt árið 1962, sem hefur fengið lof fyrir fallega hönnun. Arkitekt hússins er Guðmundur Kr. Guðmundsson. Eignin skiptist í forstofu, ... Sýna meira
***KOMIN AFTUR Í SÖLU***Alda fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt og vel skipulagt 87,1 m², 3. herbergja íbúð á 11. hæð að Sólheimum 25, 104 Reykjavík. Húsið er byggt árið 1962, sem hefur fengið lof fyrir fallega hönnun. Arkitekt hússins er Guðmundur Kr. Guðmundsson. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi og úr öðru þeirra er útgengt út á svalir, gang, baðherbergi, eldhús, stofu og þaðan er einnig útgengt út á stærri svalir. Tvær geymslur, (2 m² og 2,5 m²) sú minni er á hæðinni og næg bílastæði.Gólfsíðir gluggar í stofu með glæsilegu útsýni yfir hluta höfuðborgarsvæðisins og til fjalla. Frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi miðsvæðis við Laugardalinn. Stutt er í alla verslun og þjónustu, m.a. Glæsibæ, Skeifuna, leikskóla, grunnskóla, sundlaug, heilsurækt, heilsugæslu og bókasafn. Laugardalurinn er í göngufjarlægð með allri þeirri útivist sem hann hefur upp á að bjóða.Fasteignamat næsta árs: 62.950.000Allar nánari upplýsingar veitir Valgeir Leifur, aðstoðarmaður fasteignasala, sími 780-2575 eða Skv. fasteignaskrá er eignin 87,1 m².Nánari lýsing:Forstofa/gangur: Parket á gólfi og fatahengi. Gangur sem tengir flest rými eignar.Forstofuherbergi: Gott barnaherbergi. Parket á gólfi.Baðherbergi: Flísalagt hólf og gólf. Salerni, sturta, tveir speglar, vaskur og innrétting.Hjónaherbergi: Rúmgott og gott skápapláss. Viðar rennihurðir á fataskáp. Útgengt út á svalir. Parket á gólfi.Eldhús: Gott skápapláss, háfur, ofn, helluborð og parket á gólfi.Stofa: Er rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Gólfsíðir gluggar með útsýni yfir höfuðborgarsvæðið og til fjalla. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengt út á svalir.Svalir: Rúmgóðar, um 12-14 m² og skv. seljanda var svalahandrið endurnýjað 2022.Geymsla I: Er staðsett á hæðinni og er 2 m².Geymsla II: Er staðsett á geymslugangi í kjallara og er 2,5 m².Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg og er staðsett í kjallara. Snyrtileg með epoxy gólfi. Útgengt út á lóð.Þvottaherbergi og þurrkherbergi: Er rúmgott og sameiginlegt á 12. hæð hússins (efstu) með epoxy á gólfi. Þrjár þvottavélar, þurrkari, strauvél og vinnuborð. Bjart rými með glæsilegu útsýni.Sameiginlegar svalir: Eru staðsettar á þaki hússins. Glæsilegt 360 gráðu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið.- Húsvörður er í húsinu.- Tvær lyftur eru í húsinu.- Nýlegur myndavéladyrasími er í húsinu.- Myndavélaeftirlitskerfi er í sameign hússins. - Öll sameign hússins er til mikillar fyrirmyndar og viðhald á húsinu gott.Allar nánari upplýsingar veita Valgeir Leifur, aðstoðarmaður fasteignasala, sími 780-2575 eða og Halldór Kristján lgf, Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 kr fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALDA fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.