RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna: Sérlega rúmgóða og fallega 4ra herbergja íbúð á 4.hæð með suður svalir með svalalokun í góðu fjölbýli með lyftu og stæði í bílageymslu.Eignin er sérlega vel staðsett í grónu hverfi, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, t.a.m.... Sýna meira
RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna: Sérlega rúmgóða og fallega 4ra herbergja íbúð á 4.hæð með suður svalir með svalalokun í góðu fjölbýli með lyftu og stæði í bílageymslu.Eignin er sérlega vel staðsett í grónu hverfi, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, t.a.m. heilsugæslu, félagsstarf í Borgum, verlsanir, bókasafn, golfvelli GR, íþróttamiðstövar bæði í Egilshöll og Dalhúsum.Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 104,8 fm og þar af er geymsla 7,2 fm.Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða alla daga á netfangið SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS SMELLTU HÉR og þú skoðar eignina í 3D - frábært tækifæri til nánari skoðunar á eigninni.* Íbúðin er á 4. hæð - fallegt útsýni til suðurs ** Lyfta - Myndavéladyrasími ** Stórar suður svalir - með svalalokun og hitara ** Parket á gólfi utan votrýma og forstofu ** Öll svefnherbergin eru mjög rúmgóð og með fataskápum ** Sameign er virkilega snyrtileg ** Rafmagnsopnun með "flögu" á aðalhurðum *Innan íbúðar er forstofa, eldhús, stofa, borðstofa, þrjú herbergi, baðherbergi og þvottahús.Nánari lýsing eignar:Forstofan með flísum á gólfi og fatahengi. (Fataskápar úr eik voru færðir og eru í geymslunni og er því hægt að setja þá aftur upp)Eldhúsið, stofan og borðstofan eru í opnu björtu samliggjandi rými þar sem eru gluggar til suðurs. Úr stofunni er útgengt á mjög rúmgóðar suður svalir með svalalokun og rafmagnshitara í lofti.Í eldhúsinu er góð innrétting þar sem skápar ná upp í loft, með tengi fyrir uppþvottavél, flísum á milli skápa og ljósum undir skápum.Herbergi I er mjög rúmgott, rúmir 17 fm að innanmáli, hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum fataskápum.Herbergi II er rúmgott, rúmir 11 fm að innanmáli, með góðum fataskáp og parketi á gólfi. Nýtist í dag sem sjónvarps og vinnuherbergi.Herbergi III er rúmgott, tæpir 9 fm að innanmáli, með góðum fataskápum og parketi á gólfi. Nýtist í dag sem skrifstofa.Baðherbergið er í góðri stærð með upphengdu salerni, sturtu, góðri innréttingu undir og við handlaug, flísalagt í hólf og gólf utan þess að dúkur er á veggjum inni í sturtunni.Þvottahúsið er með góðri innréttingu með vaski, tengi fyrir bæði þvottavél og barkalausan þurrkara, veggföstum hillum og flísum á gólfi. Geymsla íbúðar er í kjallara og er skráð 7,2 fm með góðum hillum og er tvöfaldur fatastkápur sem var í anddyri íbúðar í geymslunni.Í sameign er góð hjólageymsla og er sameignin öll hin snyrtilegasta.Stæði í bílageymslu fylgir eigninni og er merkt íbúðinni. Búið er að leggja rafmagn í öll bílastæði fyrir rafhleðslustöð.Næg bílastæði eru við húsið.Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.Heimasíða RE/MAXGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk