Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
thordis@lf-fasteignasala.is kynna:
Sólbakki 2, Neskaupstað íbúð í vesturenda efri hæðar.
Frábært útsýni og gluggar til 3ja átta.
Vönduð og þægileg, fullfrágengin íbúð.
Íbúðin er 80,8 m², þar af er geymsla 3,6 m²
íbúð með sérinngangi af svölum.
Íbúðin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í sama rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi með rúmgóðri þvottaaðtöðu og geymslu á geymslugangi á neðri hæð.
Sameignileg hjóla- og vagnageymsla með sér inngangi.
Forstofan er rúmgóð með fataskáp, flísar á gólfi.
Alrýmið er rúmgott með vandaðri eldhúsinnréttingu frá Brúnás og eyju með helluborði með viftu í.
Bökunarofn er í þægilegri vinnuhæð.
Svalir með flottu útsýni eru framan við stofuna og er svalahurðin vönduð og hægt að læsa henni utanfrá og opna og læsa með lykli.
Innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum og parketi á gólfum.
Baðherbergi með flísum á gólfi, góð innrétting og speglaskápur.
Flísalagt sturtuhorn.
Þvottahús er hluti af baðherberginu, þar er innrétting fyrir 2 tæki (þvottavél og þurrkara).
Sér geymsla ásamt vagna- og hjólageymslu er á geymslugangi og er inngangur beint í hjóla- og vagnageymsluna að sunnanverðu og einnig inn á ganginn að norðanverðu.
Brúnas innréttingum með eikaráferð og hvítum efri skápum er í eldhúsi.
Íbúðin er kynnt með rafmagnsofnum.
Í forstofu og baðherbergi er rafmagnsgólfhiti.
Íbúðin er fullbúin og er gott parket á alrými og herbergjum en flísar á öðrum gólfum innan íbúðarinnar.
Hljóðdúkur í loftum íbúðar og gefur hann góða hljóðvist.
Reykskynjarar, slökkvitæki og læstur lyfjaskápur eru í íbúðinni.
Húsið er úr forsteyptum einingum.
Gólfplötur eru staðsteyptar. Þak er hefðbundið tvíhalla þak með bárujárni.
Útihurðar, gluggar og svalahurðar eru timbur/ál með tvöföldu K-gleri.
Lóðin er fullfrágengin með grasi og hellum.
Aðgengi að húsinu er malbikað ásamt bílastæðum.