Sogsbakki, sumarhús í landi Ásgarðs, hitaveita, lokað svæði.
Fasteignaland kynnir: Sumarhús inn á skipulögðu sumarhúsasvæði í landi Ásgarðs í Grimsnes-og Grafningshreppi. Um er ræða 116 fm hús samkvæmt Húsnæðis-og mannvirkjastofnun. Húsið var byggt árið 2008 og er klætt með litaðri báru og timbri í bland. Í þessu húsi er steypt plata með hitalögn i gólfi.
Lýsing á eign: Forstofa með flisum á gólfi og fatahengi. Herbergisgangur með parketi á gólfi. Þrjú herbergi með parketi á gólfi. Eitt með góðu skápaplássi. Útgengi er úr hjónaherbergi út á suður verönd. Baðherbergi með flísum á gólfi og að hluta á veggjum. fallegri hvítri innréttingu og sturtu (Walk in). Stofan og eldhúsið eru í sama rými með góðri lofthæð og parketi á gólfi. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu og vönduðum tækjum. Útgeni út á suður verönd úr stofu og eldhúsi Þvottahús með flísum á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Lóðin er 5.767 fm eignarlóð gróin og kjarri vaxin. Stór sólpallur með girðingu og skjólgirðingu. Heitur pottur.
Þetta er falleg og vel um gengin eign. Góð aðkoma og næg bílastæði.
Svæðið er lokað með rafmagnshliði (símahlið).
Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.
Upplýsingar gefa: Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is