Fjárfesting fasteignasala kynnir einbýlishúsið Sogaveg 24, 108 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 203-4416 ásamt öllu sem fylgir, þar neð talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð er 98,2 fm og skiptist eignin í efri og neðri hæð. Á neðri hæð er forstofa, gangur, gestasnyrting, hitageymsla, þvottahús, eldhús, stofa. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Lóð í rækt.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Valtýsson viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali s.865 3022 eða gudmundur@fjarfesting.is sem sýnir húsið sunnudaginn 21.6 kl 18:00 til 18.30.Nánari lýsing neðri hæðar:
Forstofa
Gangur með parketi á gólfi
Eldhús neð borðkrók
Stofa með parketi á gólfi
Gestasnyrting með flísum á gófi
Nánari lýsing efri hæðar.Hjónaherbergið er parketlagt, með fataskáp
Barnaherbergin tvö eru með parket á gólfum
Gangur er parketlagður
Baðherbergi er með flísum
Eignin hefur fengið gott viðhald. Skólplagnir hafa verið endurnýjaðar úti árið 2021 og inni árið 2010. Árið 2018 var nýtt rafmagn dregið í allstaðað. Þak var endurnýjað árið 2017. Nýtt gler 2018. Nýr gluggi í stofu 2022. Árið 2018 var baðherbergi og eldhús endurnýjað að mestu.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, verslanir og þjónustu og Grundargarður í næsta nágrenni.Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.
Fjárfesting fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.