Fasteignasalan TORG kynnir: Mjög bjarta, fallega og mikið uppgerða 5-6 herbergja sérhæð með bílskúr í góðu fjórbýlishúsi á eftirsóttum stað við Sogaveg í Reykjavík. Eignin er skráð 174,9fm. Hæðin er mjög vel skipulögð og björt með stórum og fallegum gluggum. Tvö baðherbergi eru á hæðinni ásamt góðu... Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir: Mjög bjarta, fallega og mikið uppgerða 5-6 herbergja sérhæð með bílskúr í góðu fjórbýlishúsi á eftirsóttum stað við Sogaveg í Reykjavík. Eignin er skráð 174,9fm. Hæðin er mjög vel skipulögð og björt með stórum og fallegum gluggum. Tvö baðherbergi eru á hæðinni ásamt góðum s/v svölum. Eignin hefur gengið í gegnum gríðarlegar endurbætur sem eru sundurliðaðar hér að neðan. Hæðin skiptist í góða forstofu, 3 svefnherbergi, geymslu/skrifstofu með stórum glugga, tvö baðherbergi, rúmt og gott eldhús, borðstofu, bjarta og góða stofu, þvottahús og geymslu/búr inn af þvottahúsi. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á NÁNARI LÝSING:Komið er inn í flísalagt anddyri með innfeldum fataskápAuka baðherbergi: Frá anddyri er auka baðherbergi með hvítri innréttingu, flísar á veggjum og gólfiÞvottahús: Með nýrri hvítri innréttingu, flísar á gólfiGeymsla/búr: Inn af þvottahúsi, flísar á gólfiEldhús: Mjög rúmgott eldhús með nýjum innréttingum og tækjum, parket á gólfiBorðstofa: Nýjir sérsmíðaðir franskir gluggar til að skilja borðstofuna að, parket á gólfiStofa: Mjög björt og rúmgóð með nýjum stórum gluggum, parket á gólfiHjónaherbergi: Stórt og bjart herbergi með stóru fataherbergi, parket á gólfiBaðherbergi: Með sturtuklefa, baðkari, baðinnréttingu og hita í veggjum, flísar á veggjum og gólfiSvefnherbergi: Rúmgott og bjart með tveimur gluggum, var áður tvö svefnherbergi, parket á gólfiSvefnherbergi: Vel skipulagt með góðum glugga, parket á gólfiGeymsla/Skrifstofa: Rými sem er notað sem skrifstofa með stórum glugga, parket á gólfiBílskúr: 28,8fm , ný bílskúrshurð, millivegg slegið upp til að búa til 9fm geymslu í enda bílskúrs.ENDURBÆTUR: Rafmagn- ný tafla, nýjir vírar, nýtt rofa og tengla efni, öll vegg og loftljós endurnýjuð. Pípulagnir – Nýtt neysluvatn allstaðar,nýjar lagnir fyrir sturtu og baðkar, frárennslis og vatnslagnir endurnýjað, allir ofnar endurnýjaðir. Gluggar – Nýjir gluggar í stofu. Gólfefni – Allt gólfefni endurnýjað, flísar,parket,undirlag og listar. Hurðir – allar innihurðir endurnýjaðar og eldvarnarhurð sett í forstofu og inn á sameign. Eldhús – Eldhúsinnrétting endurnýjuð að fullu ásamt öllum eldhústækjum. Þvottahús – Ný innrétting. Borðstofa – Nýjir sérsmíðaðir franskir gluggar settir til að skilja að borðstofu. Baðherbergin – Öll blöndunartæki endurnýjuð, allar innréttingar endurnýjaðar. Svalir – Yfirbygging endurnýjuð að fullu, borað fyrir rafmagni og tenglar og hitari settur upp. Ytra byrði – Múrviðgerðir á öllu húsinu sem ekki er álklætt og málað, nýr brunnur settur í bílaplan fyrir utan bílskúr.Samantekt: Um er að ræða virkilega vel skipulagða og fallega eign sem grípur augað hvert sem litið er. Stutt er í alla helstu þjónustu hverfisins. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á