Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali / jason@betristofan.is og í síma 7751515 kynna:
Fjögur heilsárshús / sumarhús á Laugarvatni í landi Snorrastaða, sem eru samtals skráð
328,5 fermetrar. Eignarlóð yfir 25.000 fermetrar, eða rúmir 2,5 hektarar. Tvö húsanna eru rúmlega 100 fermetrar að stærð og tvö minni hús sem eru rúmlega 50 fermetrar hvort. Landanúmer er L168101. Sameiginleg svæði, leiksvæði og rafhleðslustöðvar fyrir bifreiðar.
Eignirnar eru allar á einu fastanúmeri og möguleiki er að skipta eignunum í fjögur fastanúmer. Tilvalið fyrir aðila í ferðaþjónustu.
Stutt á golfvöll, baðlón, til fjalla og Gullna hringinn.
Nánari lýsing:
Sæból, 106,6 fermetrar. Skiptist í 4 svefnherbergi, stofa og eldhús, stofa og borðstofa og baðherbergi með sturtuaðstöðu.
Ægisból, nýjasta húsið er samtals 108 fermetrar, byggt árið 2020, skiptist í 3 svefnherbergi, rúmgóð stofa og eldhús, stofa og borðstofa. Tvö baðherbergi með sturtuaðstöðu. Glæsilegt hús með gólfhita.
Hrannarból, 56,7 fermetrar, er með 2 svefnherbergjum, eldhús, stofa, baðherbergi með sturtuaðstöðu.
Laugaból, 50,5 fermetrar, 3 svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtuaðstöðu.
Innan fastanúmers er einnig Dæluhús sem er 6,7 fermetrar að stærð.
Heitir pottar eru við öll húsin fjögur.
Umhverfið er glæsilegt, stutt í ýmsa afþreyingu eins og gufuböð, sundlaugar ofl.
Bókið skoðun:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: jason@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.