N Ý T T Á S K R Á Heimii fasteignasala kynnir rúmgóða 2ja herb. 69,8 fm. íbúð rétt við Hlemm. Íbúðin, sem er á 2. hæð, er að miklu leiti upprunaleg, sjarmerandi á sinn hátt eða býður uppá möguleika til að laga að eigin þörfum eða smekk. Komið er inn í rúmgott hol og þaðan gengið inn í öll rými ... Sýna meira
N Ý T T Á S K R Á Heimii fasteignasala kynnir rúmgóða 2ja herb. 69,8 fm. íbúð rétt við Hlemm. Íbúðin, sem er á 2. hæð, er að miklu leiti upprunaleg, sjarmerandi á sinn hátt eða býður uppá möguleika til að laga að eigin þörfum eða smekk. Komið er inn í rúmgott hol og þaðan gengið inn í öll rými íbúðarinnar. Stofan snýr út á Snorrabraut en út af svefnherbergi eru svalir inn í bakgarð hússins. Í herberginu er gott skápapláss. Eldhúsið er með upprunalega innréttingu, virkilega hlýlegt að setjast þar með kaffibolla, nú eða endurnýja - allt eftir efnum og aðstæðum hvers og eins. Baðherbergið er óvenju stórt, það hefur verið flísalagt í hólf og gólf, þar er baðkar, góður skápur og tengi fyrir þvottavél. Á gólfum íbúðarinnar eru linolegum dúkar, sem vissulega eru farnir að láta á sjá.Fyrir nokkru síðan hefur þakjárn verið endurnýjað, en senn kemur að frekara viðhaldi hússins. Íbúðin sjálf er skráð 61,4 fm en geymsla í kjallara er 8,4 fm. Hér er tækifæri til að hreiðra um sig í miðborginni, halda í gamlan sjarma eða endurnýja, eins og efni og aðstæður leyfa.Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, í síma 774 7373 eða Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.