Nýtt á skrá! Snæland 1 í Reykjavík - Frábær 4ra herb. íbúð í fallegu og mikið endurnýjuðu húsi, með suðursvölum og sérmerktu stæði með rafhleðslustöð.Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallega og vel skipulagða 89,8 fermetra (birtir fermetrar skv. fasteignaskrá), auk 5,0 fermetra geymslu (sem er ekki inn í birtum fermetrum) 4ra herbergja búð á 2. hæð með stórum svölum til suðurs í fallegu og vel viðhöldnu fjölbýlishúsi við Snæland 1 í Fossvogi Reykjavík. Stofa er rúmgóð og með gluggum til suðurs inn í bakgarð hússins. Um er að ræða neðstu blokkina í dalnum og því mikið útsýni til suðurs (svalamegin).Húsið lítur vel út að utan og hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Húsið var múrviðgert árið 2012 og svo málað aftur árið 2021. Dren, lagnir og niðurföll frá þak-og svalarniðurföllum ásamt brunnum var allt endurnýjað á suðurhlið hússins árið 2019. Auk þess voru lagnir hreinsaðar og myndaðar á norðurhlið hússins. Þak var yfirfarið árið 2020 og skipt um þakjárn og pappa eins og þurfti. Auk þess voru þakkantur og rennur yfirfarið og endurnýjað. Skipt var um glugga í stigahúsi/sameign árið 2020 og voru aðrir gluggar í húsinu yfirfarnir árið 2021. Rafmagnstafla í sameign var endurnýjuð árið 2023. Auk þess var sameign máluð árið 2026 og á sama tíma voru gólf í hjólageymslu og þvottaherbergi flotuð upp á nýtt í kjallara hússins.Lóðin er afar snyrtileg með hellulagðri stétt fyrir framan hús og malbikuðum stæðum. Garðurinn er vel hirtur, tyrfður og fallegur gróður. Sameign/stigagangur er afar snyrtileg með teppi og nýlega máluð.Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknarverðum stað við Fossvogsdalinn í Reykjavík þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla og íþróttasvæði. Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni sem liggja um Fossvogsdalinn, inn í Elliðaárdalinn, Nauthólsvík og víðar.Nánari lýsing:Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Eldhús: Er opið að hluta við stofu. Með harðparketi á gólfi og góðri eldhúsinnréttingu með miklu skápaplássi. AEG stál bakaraofn, AEG keramik helluborð og vifta. Borðkrókur og gluggi til suðurs.
Stofa: Er rúmgóð, björt og með harðparketi á gólfi. Gluggar til suðurs inn í bakgarð/að svölum. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á svalir.
Svalir: Eru stórar og snúa til suðurs inn í bakgarð hússins.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi og glugga til norðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask og salerni. Tengi fyrir þvottavél/þurrkara.
Sérgeymsla: Er staðsett í kjallara og er u.þ.b. 6 fermetrar að stærð (ekki inn í skráðum fermetrum). Gluggi og hillur.
Hjóla- og vagnageymsla: Með nýlega flotuðu gólfi, hjólasnögum og útgengi á framlóð.
Þvottaherbergi: Er eingöngu fyrir fjórar íbúðir í húsinu (þ.á.m. íbúð 202). Nýlega flotað gólf, sér tenglar fyrir íbúðir, vinnuborð, vaskur og gluggi til norðurs.
Sérmerkt stæði er á framlóð hússins með rafhleðslustöð. Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is