Heimili fasteignasala kynni í einkasölu: Snæland 1 - Mikið endurnýjuð og sérlega vel skipulögð og björt 4ra herbergja íbúð á efstu hæð með miklu útsýni. Íbúðin er í húsi teiknuðu af Kjartani Sveinssyni og er i einu neðsta fjölbýlinu við Fossvogsdalinn.Eignin verður sýnd í opnu húsi mánudaginn 16 sep... Sýna meira
Heimili fasteignasala kynni í einkasölu: Snæland 1 - Mikið endurnýjuð og sérlega vel skipulögð og björt 4ra herbergja íbúð á efstu hæð með miklu útsýni. Íbúðin er í húsi teiknuðu af Kjartani Sveinssyni og er i einu neðsta fjölbýlinu við Fossvogsdalinn.Eignin verður sýnd í opnu húsi mánudaginn 16 september kl. 17:00 - 17:30. Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson, fasteignasali, Lýsing eignar: Íbúðin skiptist í hol, opið rými sem er stofa, eldhús og borðstofa, sjónvarpshol, þvottahús, baðherbergi, hjónaherbergi og tvö barnaherbergi. Í kjallara er sérgeymsla íbúðarinnar (er ekki inni í stærð íbúðar), sameiginleg hjólageymsla og sameiginlegt þvottahús. Merkt bílastæði á plani fyrir framan húsið. Nánari lýsing eignarinnar: Komið er inn í rúmgott parketlagt hol með góðum fataskápum. Opið parketlagt rými sem er eldhús, stofa og borðstofa. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu og vönduðum tækjum, falleg eyja skilur frá stofunni. Sérlega björt stofa og borðstofa, bjartir gluggar eftir allri hliðinni og sérlega fallegt útsýni niður í Fossvogsdal, Breiðholt og upp í Elliðaárdalinn. Stórar suðursvalir eru með allri hlið íbúðarinnar. Innaf stofu er parketlagt sjónvarpshol. Innaf holinu er þvottahús með vaski, skápum og hillum. Svefnherbergisgangur með parketi á gólfi. Rúmgótt hjónaherbergi með parketi og góðum fataskápum með spegli. Tvö parketlögð barnaherbergi. Baðherbergið hefur verið endurnýjað, flísar á gólfi, innrétting og baðkar með sturtu, fallegur spegill fylgir.Geymsla íbúðarinnar í kjallara er ekki inn í fermetrum íbúðarinnar og má ætla að íbúðin sé nær því að vera 95 fm að raunstærð.Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð, m.a. eldhús, baðherbergi o.fl. Parket var slípað 2020. Sett var nýtt gler í íbúðina að hluta 2020 og skipt um svalahurð 2021. Ný eldvarnarhurð var sett 2024.Húsið sjálft hefur fengið almennt gott viðhald. Húsið var múrviðgert 2012 og málað aftur 2021. Lagnir, dren og niðurföll voru endurnýjuð 2019, einnig voru brunnar yfirfarnir. Þak var yfirfarið 2020, skipt um járn og klæðningu eins og þurfti, einnig þakkantur og rennur. Skipt um glugga í stigahúsi 2020 og aðrir gluggar í húsinu yfirfarnir 2021. Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð 2023. Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson, fasteignasali.Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.