Fasteignasalan Hvammur 466 1600Snægil 19 íbúð 202 - Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli í Giljahverfi - stærð 92,7 m²Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Sameiginlegt geymsluloft er yfir íbúðum á efri hæð og er fellistigi upp á það.
Forstofa er með flísum á gólfi og tvöföldum skáp.
Eldhús, flísar á gólfi og spónlögð innrétting með hvít máluðum flísum á milli skápa. Ísskápur er innfelldur í innréttingu og fylgir með við sölu eignar. Borðkrókur með hornglugga.
Stofa er með dökku parketi á gólfi og gluggum til þriggja átta. Úr stofu er hurð út á steyptar vestur svalir, skráðar 6,0 m² að stærð.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með dökku parketi á gólfi og spónlögðum fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 8,0 og 13,0 m²
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu, wc, baðkari með sturtutækjum og glervæng og opnanlegum glugga.
Þvottahús er á milli forstofu og geymslu, þar eru flísar á gólfi, bekkur með skolvaska og hillur.
Geymsla er inn af þvottahúsinu með dökku parketi á gólfi og opnanlegum glugga. Geymslan er skráð skv. teikningum 6,0 m² að stærð og getur nýst sem þriðja svefnherbergið.
Annað- Sameiginlegt geymsluloft er yfir íbúðum efrihæðar og er fellistigi upp á það á stigapallinum.
- Sameiginlegur geymsluskúr er fyrir framan húsið.
- Húsið var málað að utan sumarið 2025.
- Leiksvæði er við hliðina.
- Vinsæl staðsetning - gott útsýni.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.