Fasteignasalan Hvammur 466 1600Snægil 15 íbúð 102 - Skemmtileg 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli í Giljahverfi stærð 78,5 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu. Sameiginleg geymsla er á hæðinni.
Forstofa er með flísum á gólfi og þreföldum skáp.
Eldhús, flísar á gólfi og hvít máluð innrétting grárri bekkplötu. Stæði er í innréttingu fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Stofan er björt, með gluggum til þriggja átta og hurð út á timbur verönd með timbur skjólveggjum. Plastparket er á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með plastparketi á gólfi. Stór hvítur fataskápur er í öðru herberginu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja. Svört máluð innrétting, baðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er með plastparketi á gólfi og opnanlegum gluggi. Möguleiki er að nota þetta rými sem lítið barnaherbergi.
Sameiginleg geymsla er á hæðinni.
Annað- Búið er að endurnýja dyrasíma.
- Vel staðsett eign - stutt í leik og grunnskóla.
- Timbur verönd.
- Eignin er laus til afhendingar í haust, sept/okt.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.