TIL LEIGU: Falleg og vel skipulögð 68,9 m2, 2ja herbergja íbúð með með glæsilegu útsýni og sérinngangi af svalagangi á 2.hæð í 2ja hæða fjölbýli við Snæfríðargötu 3 í Mosfellsbæ. Stórar svalir í suðurátt (ca. 15 m2). Eignin er skráð 68,9 m2, þar af íbúð, 64,3 m2 og geymsla 4,6 m2. Íbúðin skiptist í ... Sýna meira
TIL LEIGU: Falleg og vel skipulögð 68,9 m2, 2ja herbergja íbúð með með glæsilegu útsýni og sérinngangi af svalagangi á 2.hæð í 2ja hæða fjölbýli við Snæfríðargötu 3 í Mosfellsbæ. Stórar svalir í suðurátt (ca. 15 m2). Eignin er skráð 68,9 m2, þar af íbúð, 64,3 m2 og geymsla 4,6 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi/þvottaherbergi. Sérgeymsla á jarðhæð. Eignin er laus til leigu frá 1. júlí 2024Nánari lýsing: Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. Stofa er í björtu opnu rými með harðparketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á stórar svalir til suðurs. Eldhús er með harðparketi á gólfi og L-laga hvít innréttingu með blástursofni, helluborði, viftu, ísskáp og uppþvottavél. Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum. Baðherbergi/þvottaherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Falleg baðinnrétting, handklæðaofn, vegghengt salerni og sturta með glerskilrúmi. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegur gluggi. Sérgeymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni, 4,6 m2. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð.Íbúðin er laus til afhendingar 1. júlí 2024. Leiguverð er 280.000 kr á mánuði, með hússjóð. Leiguverð er tengt vísitölu. Leigutaki greiðir sjálfur fyrir rafmagn. Meðmæli og 2ja mánaða leigutrygging. Ath. dýrahald og/eða reykingar í íbúðinni eru ekki leyfilegar.Nánari upplýsingar veitir Svanþór - eða Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.