Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: Glæsileg og einkar vel skipulögð endaíbúð á 4 hæð í nýlegu lyftuhúsi (byggt 2022) við Smyrilshlíð í Hlíðarendahverfi. Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni og tvennar svalir, þar af 25,9fm þaksvalir.Íbúðin sjálf er 149,4 fm. Í bílakjallara hússins fylgir ... Sýna meira
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: Glæsileg og einkar vel skipulögð endaíbúð á 4 hæð í nýlegu lyftuhúsi (byggt 2022) við Smyrilshlíð í Hlíðarendahverfi. Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni og tvennar svalir, þar af 25,9fm þaksvalir.Íbúðin sjálf er 149,4 fm. Í bílakjallara hússins fylgir eigninni stór bílskúr 27,1 fm og bílastæði þar fyrir framan. Inn af bílskúrnum er svo sérgeymsla (11,9 fm). Samtals 188,4 fm.Einungis ein önnur íbúð er á hæðinni. Bókið skoðun hjá Ingibjörgu Þórðardóttur löggiltum fasteignasala í síma 864-8800 / Lýsing eignar:Forstofa: Harðparket á gólfi, fataskápur. Útgengt á stórar 25,9 fm þaksvalir sem snúa í norður, sem eru með timburfjölum að hluta og gervigrasi að hluta.Sjónvarpshol: milli forstofu og herbergjagangs, harðparket á gólfi.Eldhús: svört viðarinnrétting frá GKS, gott skápapláss, eldunareyja sem unnt er að sitja við. Borðstofa við eldhús, harðparket á gólfi. Setustofa: rúmgóð og björt, harðparket á gólfi, opin við eldhús, útgengt á svalir sem snúa í suðvestur.Hjónaherbergi: rúmgott herbergi, harðparket á gólfi, fataherbergi með skápum á sitthvora höndina inn af hjónaherberginu.Barnaherbergi 1: rúmgott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.Barnaherbergi 2: rúmgott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.Barnaherbergi 3: rúmgott herbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.Á herbergjagangi er vinnukrókur, harðparket á gólfi. Baðherbergi: flísar á veggjum og gólfi, hvít innrétting undir vaski, upphengt salerni, baðkar, sturta þar við hliðina, glerhurð við sturtu, gluggi.Gestasalerni/þvottahús: á hægri hönd við forstofu, innrétting með tengi fyrir vélar í þægilegri vinnuhæð, hirslur ofan og neðan við vélarnar, flísar á gólfi, innrétting undir vaski, upphengt salerni, gluggi. Bílskúr: staðsettur í bílkjallara hússins, mjög rúmgóður og er með hita, rafmagni og rennandi vatni. Epoxy er á gólfi. Inn af bílskúrnum er rúmgóð sérgeymsla með epoxy á gólfi.Aukin lofthæð er í íbúðinni og innihurðir eru hærri en gengur og gerist sem gefur íbúðinni veglegt yfirbragð.Húsið var hannað af KRark arkitektum sem leggja áherslu á að hagnýta samþættingu á milli byggingarlistar, tækni og náttúrulegs umhverfis. Byggingaraðili hússins er Dalhús. Dalhús ehf. hefur starfað á íslenskum byggingarmarkaði síðan 1991 og byggt mikinn fjölda íbúða með góðum árangri og endingu við íslenskar aðstæður.Húsið er steypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldslítilli Alpolic 4mm álklæðningu og ál undirkerfi, múraðir fletir hússins eru málaðir. Fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2024 verður 125.500.000 kr.Afar falleg og vel staðsett íbúð í nýju hverfi við Hlíðarenda, stutt í alla helstu verslun og þjónustu - stutt í fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði við sjávarsíðuna, í Öskjuhlíð og Nauthólsvík. Íþróttasvæði vals á Hlíðarenda í allra næsta nágrenni. Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864-8800 / Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali -