Jason Kr. Ólafsson, sími 7751515 og Betri Stofan fasteignasala kynna: Vel skipulagt 282,7 fm einbýlishús á 3 hæðum ásamt bílskúr og stórri lóð við Smáragötu 11 í 101 Reykjavík. Frábær staðsetning í Þingholtunum. Húsið stendur á stórri eignarlóð með stækkunarmöguleika. Nýtt eldhús, fallegar stofur, 6-7 svefnherbergi, 2 baðherbergi. Aukaíbúð með sérinnangi er hægt að útfæra á neðstu hæð en í dag er öll eignin samnýtt sem fjölskylduhús.
Aðalhæð / Miðhæð: Gengið er inn í anddyri með fatahengi og inn af því er gestasalerni.
Á anddyri, gestasnyrtingu og eldhúsi eru terrassó-flísar en að öðru leyti er gegnheilt parket á hæðinni.
Opið er á milli eldhúss og borðstofu þaðan sem útgengt er út á verönd og þaðan niður í stóran og skjólsælan og rúmgóðan garð.
Eldhúsið hefur verið endurnýjað á vandaðan hátt með sérsmíðuðum innréttingum hönnuðum af Yrki arkitektum og sama gildir með skápa bæði í borðstofu og stofu.
Úr eldhúsi er innangengt á neðri hæð.
Úr holi miðhæðar er fallegur stigi upp á efri hæð.
Efri hæð: Á efri hæð eru þrjú parketlögð herbergi, þar af er eitt mjög stórt þaðan sem útgengt er út á rúmgóðar svalir. Viðgerð og flotun var gerð á svölum árið 2024.
Fjórða herbergið á hæðinni er hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi þaðan sem einnig er útgengt út á svalirnar.
Neðri hæð: Innangengt úr eldhúsrými af. miðhæð niður í kjallara.
Einnir er sérinngangur. 2 samliggjandi svefnherbergi, 1 baðherbergi, herbergi fyrir framan baðherbergi, þvotthús og geymsla.
Bílskúrinn er 38,8 fm og var byggður árið 1989. Hiti settur í innkeyrsluna.
Húsið hefur verið talsvert endurnýjað að innan á vandaðan og smekklegan hátt og fengið gott viðhald í gegnum árin. Þakið hefur verið yfirfarið og lagað, um leið var skorsteinn fjarlægður og komið fyrir öndun á baðherbergi efri hæðar. Skipt um þakjárn og timbur yfirfarið og skipt út ef þurfti. Ný einangrun á þaklofti. Loftun á baðherbergi bætt. Rennukantur yfirfarinn, múrhúðaður og settur hitastrengur. Ný niðurfallsrör.
Allir gluggar yfirfarnir, gert við skemmdir og gluggar málaðir. Gert við útidyratröppur. Gert við svalir og nýr múrfilter á svölum. Útidyrahurðir og svalahurðir pússaðar upp og olíubornar.
Allar nánari upplýsingar gefa: Jason Kristinn Ólafsson, jason@betristofan.is í síma 7751515 - löggiltur fasteignasali
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu



















































