GUNNAR VALSSON OG LIND FASTEIGNASALA KYNNA: EINSTAKLEGA GLÆSILEGT OG MIKIÐ ENDURNÝJAÐ 6 HERBERGJA
EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ VIÐ SMÁRAFLÖT 45 Í GARÐABÆ.Eignin skiptist sem hér segir: Forstofan er með náttúrstein á gólfi, góðir skápar.
Gestasalerni, náttúrsteinn á gólfi.
Rúmgott
svefnherbergi, parket á gólfi, góður skápur.
Á
svefnherbergisgangi eru tvö barnaherbergi, hjónaherbergi og baðherbergi. Útgengt er í garð frá svefnherbergisgangi.
Barnaherbergin tvö eru bæði parketlögð.
Hjónasvíta með
baðherbergi innaf, parket á gólfi, baðherbergið er með náttúrustein á gólfi, baðkar.
Sér
sturtuherbergi, flísalagt í hólf og gólf.
Línskápur á svefnherbergisgangi.
Samliggjandi stofa, borðstofa, eldhús og setustofa. Fallegt parket á gólfum, hiti í gólfi. Útgengt er í garðinn frá setustofu.
Eldhúsið er með fallegri gegnheilli, sprautulakkaðri innréttingu og eldunnareyju, marmara borðplötur.
Bílskúrinn er sérstæður.
Hiti undir hellulögðu svæði að framan.
Garðurinn er mjög fallegur og skjólgóður, góð timburverönd.
ATH: Leyfi er fyrir því að stækka húsið um í kringum 50 fermetra.
Endurbætur: - Skipt um þak fyrir 3 árum, strompur brotinn niður og timbur endurnýjað að hluta á þaki, þakkantur klæddur. Sett hallandi þak bílskúr.
- Skipt um fyrir um 3 árum tveim af stóru gluggunum í stofunni, glugga og hurð að aftan á bílskúr.
- 2018: Gólfhiti settur í allt nema svefnherbergi, forhitari settur á neysluvatn. Vatnslagnir endurnýjaðar, rafmagn endurnýjað, sett sér rafmagnstafla fyrir eldhús.
- Gólfefni og allar innréttingar endurnýjaðar 2018.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSNGAR VEITIR GUNNAR VALSSON LÖGG FASTEIGNASALI Í S: 699-3702 /GUNNAR@FASTLIND.IS