Trausti fasteignasala kynnir virkilega fallega, endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og sérafnotareit við Smárabarð 2a, Hafnarfirði. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, samliggjandi stofu og eldhús, baðherbergi ásamt sérgeymslu/þvottahúsi innan íbúðar. Eignin er sk... Sýna meira
Trausti fasteignasala kynnir virkilega fallega, endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og sérafnotareit við Smárabarð 2a, Hafnarfirði. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, samliggjandi stofu og eldhús, baðherbergi ásamt sérgeymslu/þvottahúsi innan íbúðar. Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands alls 88,0 fm.Nánar um eignina:Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð síðustu ár, má þar nefna að eldhús var tekið í gegn árið 2018, nýtt gólfefni er á hluta eignar, ný innrétting inná baði ásamt nýjum blöndunartækjum bæði á baðherbergi og eldhúsi. Hægt er að fara á geymsluloft inn úr geymslu/þvottahúsi. Nánari lýsing:Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu, flísar á gólfi. Eldhús: Snyrtilegt með fallegri hvítri innréttingu, góðu skápaplássi, spanhelluborði og háfi sem og uppþvottavél ásamt bakaraofni í vinnuhæð. Parket á gólfi. Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa/borðstofa sem er samliggjandi með eldhúsi, þaðan er útgengt á sólpall. Parket á gólfi. Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með góðum fataskáp. Parket á gólfi. Herbergi: Rúmgott og bjart með góðum fataskáp. Parket á gólfi.Baðherbergi: Rúmgott með góðri innréttingu með vask, salerni, ásamt sturtuaðstöðu. Flísalagt.Sólpallur: Útgengt úr stofu á rúmgóðan sólpall.Geymsla/þvottahús: Geymsla er innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurkara.Sameign: Sameiginleg þvotta, hjóla- og vagnageymsla.Um er að ræða fallega eign nálægt frábæru útisvæði á eftirsóttum stað í Hafnarfirði. Stutt er í skóla og leikskóla ásamt allri helstu þjónustu í næsta nágrenni.Allar nánari upplýsingar um eignina veita:Viktoría R. Larsen, Löggiltur fasteignasali í síma 618-5741 eða á netfanginu Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir, Löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.