LIND fasteigansala kynnir bjarta og fallega tveggja herbergja íbúð á 2. hæð í snyrtilegu lyftuhúsi við Sléttuveg 15 í Reykjavík. Íbúðir í húsinu eru ætlaðar 55 ára og eldri. Stofa og eldhús eru í opnu rými, gegnheilt parket með fiskibeinamynstri á gólfi. Útgengi úr stofu á rúmgóðar svalir með svalaskjóli. Fallegt útsýni til suðurs þar sem Kópavogskirkja og Keilir blasa við. Svefnherbergi er rúmgott með gegnheilu parketi á gólfi. Eldhús og baðherbergi voru uppgerð fyrir fáum árum. Myndavéladyrasími. Geymsla er við hlið íbúðarinnar. Húsið var múrviðgert og málað að utan 2023. Á sama tíma var skipt um glugga eftir þörfum og þak yfirfarið. Sameign er mjög snyrtileg. Nýtt teppi verður lagt á sameign í ágúst nk. sem seljandi greiðir fyrir.
Á jarðhæð hússins er líkamsræktaraðstaða fyrir íbúa með búningsklefum, heitum potti og gufu. Þar er einnig veislusalur og setustofa til afnota fyrir íbúa sem og hárgreiðslustofa og snyrtistofa. Húsvörður er starfandi í húsinu. Falleg eign á góðum stað í Fossvogi þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu. Fallegar gönguleiðir allt í kring.Íbúð 207:Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Hvít innrétting með viðarborðplötu, gegnheilt parket á gólfi.
Stofa: Opin og björt, gegnheilt parket á gólfi. Útgengi á rúmgóðar svalir með svalaskjóli. Fallegt útsýni til suðurs þar sem Keilir og Kópavogskirkja blasa við.
Svefnherbergi: Gegnheilt parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting með handlaug, sturta með sturtugleri, handklæðaofn. Baðherbergið var tekið í gegn fyrir fáum árum. Nýjar flísar voru lagðar á gólfið og nýjar flísar lagðar yfir eldri flísar á veggjum.
Þvottahús er sameiginlegt á hæðinni og einnig á 4. hæð.
Sérgeymsla (6,6 fm) fyrir framan íbúðina.
Lóð er sameiginleg og vel við haldið.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.