Nýtt á skrá! Skyggnisbraut 2 Reykjavík - Vel skipulögð 3ja herb. íbúð á jarðhæð með stóru alrými og útgengi á sérafnotaflöt með fallegu útsýni. Sérstæði í bílakjallara.Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir til sölu glæsilega 93,3 fermetra 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í nýlegu fjölbýli með lyftu við Skyggnisbraut 2 í Reykjavík. Sér bílastæði í kjallara með tengi fyrir rafhleðslu. Góður sérafnotareitur til suðurs með fallegu útsýni. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og rúmgott alrými við eldhús sem rúmar vel setustofu og borðstofu. Þvottahús með rúmgóðri innréttingu og sérgeymslu inn af forstofu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Húsið er byggt árið 2016, steinað með fallega frágenginni lóð. Hellulagðrar stéttir með snjóbræðslu og sameiginleg bílastæði fyrir framan hús. Sameign er snyrtileg með flísum í sameiginlegri forstofu og teppi á stigagangi.
Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Úlfarársdal þar sem stutt er í grunnskóla , íþróttasvæði og sundlaug. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni og alla útvist í kringum Úlfarsfell.
Nánari lýsing:Forstofa: Með harðparketi á gólfi og góðum skápum.
Stofa: Er rúmgóð og með harðparketi á gólfi. Rúmar vel setustofu og borðstofu. Gluggar til suðurs með fallegu útsýni og útgengi á rúmgóðan sérafnotaflöt.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri HTH eldhúsinnréttingu með eyju. AEG stál bakaraofn, AEG helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á milli skápa og lýsing undir efri skápum. Eldhús er opið inn í rúmgóða og bjarta stofu.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til suðurs og vesturs.
Svefnherbergi II: Er rúmgott með harðparketi á gólfi og skápum. Gluggar til suðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili, upphengt salerni, góðir skápar og falleg innrétting við vask. Útloftun úr baðherbergi.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og góðri vinnuhæð fyrir þvottavél og þurrkara. Góðir skápar og vaskur (innréttingar settar upp árið 2020).
Geymsla: Er staðsett inn af forstofu. Harðparket á gólfi.
Bílastæði í bílakjallara: Sérmerkt í bílakjallara. Búið er að leggja fyrir rafhleðslu að bílastæði.
Hjóla og vagnageymsla: Er rúmgóð og snyrtileg með máluðu gólfi.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is