Jón Smári Einarsson, s. 860640, löggiltur fasteignasali, og Fasteignaland kynna: Skútahvammur 1a, 806 Bláskógabyggð
Glæsilegt og vandað 127,6 fm sumarhús á 6.134 fm eignarlóð í Úthlíð á einum besta útsýnisstað í Biskupstungum. Einstakt næði, risastór timburverönd með hitaveitupotti, tvö aðskild sumarhús (aðalhús og fullbúið gestahús) og stórfenglegt útsýni til Heklu, Tindfjalla og Eyjafjallajökuls.
* Skráð stærð: 127,6 fm aðalhús byggt 2008 + gestahús byggt 1988.
* Lóð: er skráð skv. breytingu á deiliskipulagi
6.134 fm (Samþ. 4.10.2012),
eignarlóð, gróin kjarri og með trjám, rúmgott bílaplan með rauðamöl. Lóðin er skráð hjá HMS 4.867 fm.
* Staðsetning: Einungis eru um 90 km frá Reykjavík og er svæði lokað með símahliði.
Nánari lýsing:Aðalhús er um 79,3 fm á tveimur hæðum, þar af ris skráð 24,1 fm (er með 41,4 fm gólffleti) – byggt 2008Húsið er vel skipulagt og bjart. Neðri hæð með hita í gólfi í steyptri plötu:
* Forstofa: Góð og flísalögð forstofa.
* Eldhús: Parketlagt eldhús með góðu borðplássi (skráð sem herbergi á teikningu). Þaðan liggur stigi upp á efri hæðina.
* Svefnherbergi neðri hæðar: Gott parketlagt
svefnherbergi inn af eldhúsi, þaðan er útgengt út á
suðurverönd.
* Baðherbergi: Flísalagt með sturtu og snyrtilegri innréttingu.
* Stofur: Beint af forstofu er gengið inn í góða parketlagða
stofu/borðstofu. Við hlið hennar er önnur
rúmgóð stofa með flísum á gólfi, en þaðan er útgengi á
suðurveröndina sem tengir húsin tvö saman.
* Efri hæð: Þar er
snyrting og
tvö rúmgóð svefnherbergi með miklu skápaplássi. Dúkur á gólfum.
Gestarými / Auka hús er um 48,3 fm (um 51,4 fm gólfflötur) – byggt 1988Frábær viðbót sem býður upp á mikla möguleika fyrir stórfjölskylduna eða gesti. Húsið er áfast aðalhúsinu og mjög rúmgott í skipulagi:
* Forstofa: Góð og flísalögð forstofa.
* Alrými & Eldhús: Opin og björt forstofa inn í rúmgott alrými. Eldhúshorn með uppþvottavél sem opið er inn í stofuna og við hliðina er lítið búr/geymsla. Frá alrýminu er útgengt út á verönd.
* Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi; annað með hjónarúmi og hitt með kojum ásamt breiðu rúmi.
* Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með sturtu og innréttingu.
* Geymslur: Sér útigeymsla með aðstöðu fyrir þvottavél er staðsett við hliðina á innganginum.
Lóð, verönd og nágrenniAðkoman að eigninni er til fyrirmyndar
með góðum bílastæðum norðan megin. Húsið stendur ofarlega og nýtur góðs næðis frá öðrum bústöðum á svæðinu.
Stór, samfelld
timburverönd snýr til suðurs og teygir sig á milli beggja húsanna. Á veröndinni er
heitur pottur (hitaveitupottur) þar sem hægt er að slaka á og njóta óskertar náttúrufegurðar og glæsilegrar fjallasýnar.
Á lóðinn er trjáræktarlundur með sólpalli og kofi fyrir börn. Einnig er lítil flöt með litlu fótboltamarki fyrir börn að leika sér.
Annað:Möguleiki er að fá búslóð með í kaupum á eigninni, utan persónulegra muna.
Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um kr. 30.000 á ári.
Um svæðið ÚthlíðSumarhúsasvæðið í Úthlíð er rómað fyrir snyrtileika og öfluga ferðaþjónustu. Svæðið er vandað, með hitaveitu og öryggishliði (símahlið).
Í Úthlíð er rekin fjölbreytt þjónusta, m.a.
9 holu golfvöllur,
hestaleiga,
veitingastaðurinn Réttin, heitir pottar og
frábærar gönguleiðir.
Það er ekki langt í sundlaugar sem eru á
Laugavatni, í
Reykholti, á
Flúðum og á
Borg í Grímsnesi. Svo er stutt að fara og láta sér líða vel í
Fontana spa á Laugarvatni eða í
Laugarás lagoon í Laugarási.
Stutt er í alla helstu ferðamannastaði: Geysir er í um 15 mínútna akstursfjarlægð og um 20 mínútur eru á Flúðir og Laugarvatn. Alls eru 3 golfvellir í næsta nágrenni.
Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að eignast glæsilegt, stórt og fjölskylduvænt sumarhús á frábærum stað þar sem stutt er í alla þjónustu en næðið og útsýnið eru í fyrirrúmi.
Nánari upplýsingar veitir:Jón Smári EinarssonLöggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is860-6400 Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.