Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina Skólaveg 1 (Mánaþúfa), Varmahlíð í Skagafirði ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum.
Björt, þriggja herbergja íbúð á efri hæð ásamt bílskúr, alls 136,6 fm. og byggt árið 1973.
Skráð stærð íbúðarinnar er 76,1 fm. og bílskúrsins 60,2 fm.
Leigulóð hússins alls er 1262,5 fm.
Fasteignin er vel staðsett en stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug og verslun.
Frábært útsýni er frá eigninni.Fasteignin skiptist í tvö herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og forstofu.Sérinngangur íbúðarinnar er vestan við húsið, frá honum er komið í flísalagða
forstofu með góðum skápum.
Þar við er rúmgott flísalagt
baðherbergi og minna herbergi.Á
baðherbergi er upprunaleg viðarinnrétting við vask, flísalagður sturtubotn með klefa, tengi fyrir þvottavél og handklæðaofni. Veggir baðherbergis eru panilklæddir. Sturtuklefi er með flísalögðum botni og kominn til ára sinna.
Herbergi eru bæði parketlögð, það stærra er með skápum.
Stofa er einkar björt, rúmgóð og með parketi á gólfi. Frá stofu er svalahurð út á suðursvalir að sunnan á húsinu.
Eldhús er flísalagt og þar er upprunaleg viðarinnrétting með grárri borðplötu. Frá eldhúsi er svalahurð út á austursvalir. Eldavél frá Teba og vifta frá Siemens.
Bílskúr er steyptur og rúmgóður en skráð stærð hans er
60,2 fm. Bílskúr er upphitaður.
Innst í bílskúr eru afstúkuð herbergi/geymslur ásamt snyrtingu, vask og sturtutengi.
Bílastæði fyrir framan bílskúr tilheyrir íbúðinni, skv. eignaskiptayfirlýsingu. Að öðru leyti eru bílastæði sameiginleg.
Fyrir um 10 árum var skipt um einangrun og loftaklæðningu í íbúðinni.
Hitaveitulagnir hafa verið endurnýjaðar og eru utanáliggjandi. Allar aðrar lagnir í húsinu eru frá því húsið var byggt.
Þakkantur og þakrennur á húsi og bílskúr hefur verið endurnýjað.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali
Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala