RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Vel skipulagða fimm herbergja 118 fm. íbúð með grónum garði.
- Möguleiki að kaupa 2ja herbergja íbúð og bílskúr með
- Þakjárn 2021
- Parket á íbúð 2024
- Gler í flestum gluggum endurnýjað 2021
- Teppi á stigagang 2022
- Baðherbergi stóru íbúðar, innréttingar endurnýjaðar 2018
- Allt dren og skolplagnir endurnýjað 2008
- Þakrennur 2013Nánari lýsing:Vel skipulögð fimm herbergja íbúð á 118,70 m² í þríbýli. Íbúðin er með fjórum rúmgóðum svefnherbergjum. Nýtt parket var lagt á íbúðina árið 2024. Eignin hefur verið vel við haldið á undanförnum árum, þar á meðal endurnýjuðu þakjárni og gleri í flestum gluggum.
Nánari lýsing:
Anddyri og gangur: Sameiginlegt anddyri með aukaíbúðinni.
Stofa og borðstofa: Bjart og opið alrými með ljósu parketi á gólfi (nýtt 2024) þar sem stofa og borðstofa renna saman. Stórir gluggar hleypa mikilli náttúrulegri birtu inn.
Eldhús: með hvítri innréttingu og góðu vinnuplássi. Nýlegt parket á gólfi, innfelld uppþvottavél.
Þvottahús/geymsla er innaf eldhúsi.
Baðherbergi er uppgert.
Flísalagt baðherbergi með hvítum veggflísum og ljósum gólfflísum. Hvít innrétting með vaski, upphengt salerni, handklæðaofn og rúmgóð sturta með glervegg. Gluggi er á baðherberginu.
Svefnherbergi: Fjögur svefnherbergi sem öll eru með nýlegu ljósu parketi (2024) og góðum gluggum.
Garðurinn er skjólsæll og snýr í suður.
Eignin er staðsett við Skjólbraut í Kópavogi, á eftirsóttu og rólegu svæði með stuttri fjarlægð í alla helstu þjónustu, skóla og afþreyingu. Eignin er í nálægð við Rútstún, sundlaug Kópavogs, menningarmiðju Kópavogs, Salinn, Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn og strætóstöðvar í allar áttir. Einnig örstutt í grunnskóla og leikskóla og verslanir.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.isVegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu