Gimli fasteignasala kynnir: Bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð í kjallara með sérinngangi. Í vel viðhöldnu og nýlega máluðu húsi með fallegum sameiginlegum garði við Skipasund 26, gengið inn af Hólsvegi í 104 Reykjavík.Samkvæmt Fasteignamati Ríkisins er eignin 73,7 fm þar af geymsla 0,7 fm.... Sýna meira
Gimli fasteignasala kynnir: Bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð í kjallara með sérinngangi. Í vel viðhöldnu og nýlega máluðu húsi með fallegum sameiginlegum garði við Skipasund 26, gengið inn af Hólsvegi í 104 Reykjavík.Samkvæmt Fasteignamati Ríkisins er eignin 73,7 fm þar af geymsla 0,7 fm. Eignin skiptist í: Forstofu, gang, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sameiginlegt þvottahúsi með sér litlu geymslurými.Að sögn seljanda er búið að endurnýja mikið í húsinu þ.m.t. skolplögn, dren, vatns- og ofnalagnir, nánast alla glugga og gler ásamt því að skipt hefur verið m.a. um þakjárn og þakpappa á þaki. Hiti settur í stétt fyrir framan við húsið. Nýlegt harðparket á íbúð og nýlegar innihurðar ásamt því að búið er að endurnýja ofn, helluborð og viftu í eldhúsi.Allar upplýsingar veitir Elín Urður Hrafnberg, Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til Nánari lýsing:Forstofa: er með flísum á gólfi.Gangur/hol: er með harðparketi á gólfi og tengir saman önnur rými.Stofan: er björt með harðparketi á gólfi og skáp sem hægt væri að færa í barnaherbergið.Eldhús: er með hvítri U-laga innréttingu, búið er að setja góða skápa þar sem borðkrókur var, auðvelt að taka skápa niður ef þess þarf. Helluborð og ofn síðan 2018 og ný vifta. Harðparket á gólfi og góður opnanlegur gluggi. Ísskápur getur fylgt með.Hjónaherbergi: er rúmgott og bjart með nýlegum fataskáp og harðparketi á gólfi.Barnaherbergi: er rúmgott og bjart með harðparketi á gólfi.Baðherbergi: er með sturtu, dökkri baðinnréttingu, speglaskáp og salerni. Veggir flíslagðir að hluta. Gluggi með opnanlegu fagi.Geymsla: lítil sér geymsla í þvottahúsi.Sameignilegt þvottahús þar sem hver og einn er með sína vél á sínu rafmagni.Niðurlag:Virkilega góð eign á góðum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun, sund og aðra þjónustu. Fallegar göngu- og hjólaleiðir allt í kring hjá Laugardalnum. Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því fljótlega 40 ára starfsafmæli. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.