LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega og vel skipulagða íbúð á efri hæð með sérinngangi í snyrtilegu og vel staðsettu fjórbýlishúsi við Skeljatanga 44 í Mosfellsbæ. Eignin er alls 94,2 m2 sem skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús/borðstofu, stofu og útigeymslu. Geymsluloft er yfir allri íbúðinni sem er ekki inn í uppgefnum fermetrafjölda.
* 2025 eldhúsinnrétting endurnýjuð
* 2025 allar innihurðar endurnýjaðar
* 2022 parket endurnýjað
* 2026 skápahurðar í hjónaherbergi endurnýjaðar
* 2026 nýjar gardínur í alrýmiNánari lýsing.Forstofa með flísalögðu gólfi og hvítum efri skápum.
Eldhúsið er opið inn i stofu með fallegri innréttingu með ljúflokunum á skúffum, ofn í vinnuhæð, keramik helluborð með viftu yfir, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa með harðparketi á gólfi og útgengi út á skjólgóðar svalir sem snúa út í garðinn.
Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og fjórföldum fataskáp.
Barnaherbergin eru tvö með harðparketi á gólfi og fataskáp í öðru þeirra.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum, hvít innrétting með vaski ofaná, spegill með fallegri lýsingu, hvítur skápur til hliðar, sturtuklefi, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús með flísalögðu gólfi og hvítum innréttingum þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Geymsluloft er yfir allri íbúðinni
Útigeymsla er við hlið inngangs íbúðarinnar, með rafmagni.
Eigninni fylgir tvö sérmerkt bílastæði. Eignin stendur í rólegum botnlanga og er stutt í alla helstu þjónustu. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is