Borg fasteignasala kynnir: 2ja herbergja íbúð á 1.hæð Eignin skiptist í stofu, eldhús, anddyrri, hol, baðherbergi, svefnherbegi, geymslu og bílastæði í bílskýli. Íbúðin sjálf er 66m².Söluyfirlit og nánari upplýsingarNánari lýsingInngangur er af svalagangi. Komið er inn í flísalagt anddyri með fatahengi. Hol tengir saman helstu rými íbúðarinnar.
Eldhús er með harðparket á gólfi, góðri innréttingu og stæði fyrir uppþvottavél. Í eldhúsi er einnig góður borðkrókur. Stofan er rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi er með harðparket og með stórum fataskáp. Úr svefnherbergi er útsýni til sjávar og yfir Esjuna. Baðherbergi er flísalagt með hvítri innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu og möguleika á þvottaaðstöðu. Svalir snúa í suðvesturátt.
Í sameign er sérgeymsla ásamt sameiginlegri hjólageymslu. Bílageymsla fylgir eigninni og er gengið inn í hana úr sameign þar sem geymslur eru staðsettar.
Nánari upplýsingar veitirVictor Levi R. Ferrua löggiltur fasteignasali.
s. 868-2222 / victor@fastborg.is
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.