Hreiðar Levý löggiltur fasteignasali og Aron Bjarnason nemi til löggildingar fasteignasala hjá Betri Stofunni fasteignasölu kynna:2 herbergja íbúð í kjallara í 3 íbúða húsi að Skeggjagötu 15, 105 Reykjavík auk sérgeymslu á jarðhæð innan húss og kaldri geymslu undir útitröppum. Eignin er skráð 30 fm. að stærð en geymslurnar sem eru samtals 3 fm. eru ekki skráðar inni í fermetratölu eignarinnar.
Skipulag íbúðar: Eignin skiptist í alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi, svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu. Stór, gróinn og fallegur garður í kringum húsið. Mjög góð staðsetning í norðurmýrinni með miðbæinn með allri sinni nærþjónustu, menningu og mannlífi í göngufjarlægð.
Eignin er í útleigu í dag þar sem sami leigutaki er búinn að vera lengi og vilji til þess að halda áfram. Nýr kaupandi tekur yfir núverandi leigusamning og er 230.000kr. Árs uppsagnarfrestur er á leigusamning.
Nánari lýsing: Gengið er inn um inngang á hlið hússins þar sem komið er inn í sameiginlega geymslu og þvottahúsgang hússins.
Inngangur í íbúð er við enda gangs á vinstri hönd.
Forstofa er lítið hol sem tengir saman öll rými íbúðar.
Baðherbergi er með sturtu, salerni og vask.
Opið og bjart alrými með samliggjandi stofu og eldhúsi.
Svefnherbergi er innangengt úr forstofu.
Nánari upplýsingar veitir:
Aron Bjarnason nemi til löggildingar fasteignasala í síma 845-8814 eða með tölvupósti á netfangið aron@betristofan.is
Hreiðar Levý löggiltur fasteignasali í síma 661-6021 eða með tölvupósti á netfangið hreidar@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.