Fasteignasalan Hvammur 466 1600Skálatún 33 - Falleg 4ra herbergja efri hæð með sérinngangi í keðjuhúsi í Naustahverfi á Akureyri - stærð 110,0 m²Íbúðin skiptist í forstofu, hol/gang, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, þvottahús og geymslu.Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskápum.
Geymsla og þvottahús er innaf forstofu og þar eru flísar á gólfum, hillur á veggjum og opnanlegur gluggi.
Hol/gangur er með harðparketi á gólfi.
Stofan er með harðparketi á gólfi og úr henni er farið út á rúmgóðar svalir til norð-vesturs.
Eldhúsið er með flísum á gólfi og snyrtilegri innréttingu. Stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Svefnherbergin eru þrjú og á þeim öllum er harðparket á gólfum og fataskápar.
Baðherbergið er flísalagt og þar er bæði sturta og baðkar. Snyrtileg innrétting
Annað- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Íbúðin stendur hátt og úr henni er gott útsýni.
- Íbúðinni fylgja öll ljós og gardínur.
- Gólfhiti er í allri íbúðinni.
- Hitalagnir eru í stigapalli við aðalinngang og tröppum.
- Sameiginleg hjóla og dekkjageymsla með íbúð á neðri hæð.
- Góður stigapallur við er framan við forstofuna, á milli húsa.
- Stutt er í skóla og leikskóla.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.