Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Skálatún 33 - Rúmgóð 3ja herbergja neðri hæð með sérinngangi í keðjuhúsi í Naustahverfi á Akureyri - stærð 99,4 m²
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og þvottahús auk sameiginlegrar hjólageymslu með efri hæð.Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskápum.
Geymsla og þvottahús er innaf forstofu og þar eru flísar á gólfum, hillur á veggjum og opnanlegur gluggi.
Hol/gangur er með parketi á gólfi.
Stofan er með parketi á gólfi og úr henni er farið út á rúmgóða timburverönd með skjólveggjum til norð-vesturs.
Eldhúsið er með flísum á gólfi og snyrtilegri innréttingu. Stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Svefnherbergin eru tvö og á þeim öllum er parket á gólfum og fataskápar.
Baðherbergið er flísalagt og þar er bæði sturta og baðkar. Snyrtileg innrétting
Annað- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Íbúðinni fylgja öll ljós og gardínur.
- Gólfhiti er í allri íbúðinni.
- Sameiginleg hjóla og dekkjageymsla með íbúð á efri hæð.
- Stutt er í skóla og leikskóla.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.