Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Skálatún 16 - Falleg 3-4ra herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð og með innbyggðum bílskúr í Naustahverfi - stærð 135,1 m²* Góð suður verönd með timbur skjólveggjum.
* Eldhús var endurnýjað í lok árs 2025
* Aukin lofthæð í eldhúsi og stofu.
* Pljed stýring á ljósum í eldhúsi, stofu, baðherbergi, holi og öðru svefnherberginu.
* Vinsæl staðsetning, stutt í leik- og grunnskóla.Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, hol, tvö svefnherbergi, geymslu sem hefur verið nýtt sem svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og bílskúr.
Forstofa er með flísum á gólfi og þreföldum spónlögðum eikar fataskáp. Innangengt er í bílskúrinn í gegnum forstofuna.
Eldhús var endurnýjað í lok árs 2025. Falleg ljós innrétting frá HTH með marmaralitaðri bekkplötu. Vönduð AEG tæki. Ísskápur og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar.
Stofa eldhús og hol eru í alrými þar sem flísar eru á gólfum. Í stofu og eldhúsi eru aukin lofthæð og stórir suður gluggar. Úr eldhúsi er gengið út á steypta verönd.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með flísum á gólfum og spónlögðum eikar fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 9,7 og 14,9 m².
Geymsla er með flísum á gólfi og opnanlegum þakgluggar. Geymslan er skv. teikningum 6,0 m² að stærð og hefur verið nýtt sem þriðja svefnherbergið.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, spónlagðri innréttingu, upphengdu wc, handklæðaofni og walk-in sturtu. Innrétting er inn á baðherberginu fyrir þvottavél og þurrkara og lagnir fyrir baðkar.
Bílskúr er skráður skv. teikningum 24,5 m² að stærð og þar eru flísar á gólfi, bekkur með skolvaska og hillur. Sér gönguhurð er við hliðina á innkeyrsluhurðinni.
Fyrir framan er steypt bílaplan með hitalögnum í, ótengdar.
Annað- Á baklóðinni er steypt afgirt verönd.
- Allar innréttingar og fataskápar fyrir utan í eldhúsi er spónlagt með eik.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.