EIGNIN ER SELD 21.JANÚAR MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN TIL 11.FEBRÚAR NÝTT Í SÖLU - OPIÐ HÚS. SELVAÐ 5, GLÆSILEG 4RA HERBERGJA ÚTSÝNIS-ENDAÍBÚÐ Á 4.HÆÐ (EFSTU) Í SUÐUR, ÁSAMT STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU Í NÝLEGU LYFTUHÚSI Í NORÐLINGAHOLTI, RVK. EINSTAKT ÚTSÝNI. LAUS VIÐ KAUPSAMNING. Opið hús Sunn... Sýna meira
EIGNIN ER SELD 21.JANÚAR MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN TIL 11.FEBRÚAR NÝTT Í SÖLU - OPIÐ HÚS. SELVAÐ 5, GLÆSILEG 4RA HERBERGJA ÚTSÝNIS-ENDAÍBÚÐ Á 4.HÆÐ (EFSTU) Í SUÐUR, ÁSAMT STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU Í NÝLEGU LYFTUHÚSI Í NORÐLINGAHOLTI, RVK. EINSTAKT ÚTSÝNI. LAUS VIÐ KAUPSAMNING. Opið hús Sunnudaginn 17.janúar 2021, kl. 15.00 - 15,30 ÍBÚÐ 04-09. 4.HÆÐ TIL HÆGRI. Ingólfur Gissurarson lg.fs. sýnir S:896-5222. !! MUNIÐ SÓTTVARNIR !! Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari, síðan 1989, sími:896-5222, kynna: Falleg nýleg 4ra herbergja endaíbúð í suður á efstu hæð í 4ra hæða lyftuhúsi á góðum stað í Norðlingaholtinu. Glæsilegt útsýni á hluta Esju, Helgill, Bláfjöll og Heiðmörk. Íbúðin er velskipulögð 105,1 fm endaíbúð með glugga á 3 vegu. Stórum vinkil-svölum í suður og góðu stæði í bílageymslu sem innangengt er í úr sameign. Stutt í heillandi náttúru við Elliðárvatn og Heiðmörk, Víðidal og Elliðárdal. SKIPULAG: Allar innréttingar, innihurðir og skápar eru með eikarspón. Forstofa með miklum skápum. Þvottaherbergi innaf forstofu með vaski. Hol-Sjónvarpshol. 3 svefnherbergi öll með skápum. Baðherbergi flísalagt með baðkari, innréttingu, vegghengdu salerni og glugga. Eldhús með deski, falleg eikarinnrétting. Stálháfur yfir deski og ísskápur með frysti fylgir. Stofa með útgengt útá vinkilsvalir í suður. GLÆSILEGT ÚTSÝNI er frá austur hluta Esjunar, Hengilinn, Vífilfell og Bláfjöll. Sólríkar svalir þar sem sólin skín frá morgni til kvölds. Sérgeymsla í kjallara. Góð sameiginleg hjólageymsla. Gott stæði (merkt 01) í bílageymslu undir húsinu og er innangengt í sameign úr bílageymslunni. GÓLFEFNI: Eikarparket á öllum gólfum nema flísar á baði og þvottaherbergi. HÚSSJÓÐUR: 18,158.- pr.mán ANNAÐ: Ólokið er lokafrágangi á viðgerð á vegum húsfélagsins á svalagólfi, það verður gert fljótlega s.l. í vor 2021. Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari S:896-5222 Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 32 ára samfelldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 896-5222. VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - EINGÖNGU LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SAMKVÆMT GREININGU CREDITINFO 2015 til 2020, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Fletta í fasteignalista