TRAUSTI fasteignasala, Kristján og Halldór löggiltir fasteignasalar kynna í einkasölu 2ja herbergja íbúð á 3 hæð í lyftuhúsi með bílastæði í bílakjallara við Selvað 5 í Reykjavík.Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 80,6 fm, íbúðin er 73,1 og geymslan er 7,5 fm. Skiptist í anddyri, eldhús, sto... Sýna meira
TRAUSTI fasteignasala, Kristján og Halldór löggiltir fasteignasalar kynna í einkasölu 2ja herbergja íbúð á 3 hæð í lyftuhúsi með bílastæði í bílakjallara við Selvað 5 í Reykjavík.Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 80,6 fm, íbúðin er 73,1 og geymslan er 7,5 fm. Skiptist í anddyri, eldhús, stofu, þvottahús, baðherbergi, hjónaherbergi og geymslu og stæði í bílakjallara.Nánar lýsing:Forstofa með parketi á gólfi og miklu skápaplássi.Þvottahús með flísum á gólfi, skolvaski og góðum hillum Eldhús með snyrtilegri innréttingu og eldunareyju. Innbyggð uppþvottavél. Stofan er björt með parketi á gólfi. Útgengt er út á stórar suð- austursvalir (10,5 fm)Hjónaherbergið er mjög rúmgott með miklu skápaplássi og parketi á gólfi. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, baðkari með sturtuaðstöðu, handklæðaofn og snyrtilegri innréttingu. Geymsla í sameign 7,5 fm. merkt númer 19. Mjög vel staðsett. Stæði fylgir íbúðinni í bílakjallara, merkt númer 30. Mjög vel staðsett. Kirsuberjaviður er í eldhúsinnréttingu, gólfefnum og skápum í holi og herbergi. Hjóla og vagnageymsla er í sameign.Nánari upplýsingar veita , síma 867-3040 og , síma 660-5312.Staðsetning eignarinnar er mjög góð og barnvæn. Stutt er í leikskóla, skóla, íþróttasvæði og ýmsa þjónustu ásamt fallegum gönguleiðum í Heiðmörk og víðar.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.