Selvað 1, 110 Reykjavík, 4ra herbergja íbúð á þriðjuhæð í lyftuhúsi.Fasteignaland kynnir: Huggulega 4 herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi með lyftu við Selvað 1 í Norðlingaholti.
Eignin skiptist: Forstofa, stofa, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús, geymsla í kjallara, stæði í bílageymslu og hleðslustöð. Samkvæmt HMS er eignin skráð 102,9 fm ásamt geymslu 7,1 fm eða samtals 110 fm. Húsið var byggð árið 2007 og hefur íbúðin verið endurnýjuð að innan að hluta. Nýtt parket á eigninni og baðherbergi endurnýjað.
Lýsing eignar: Forstofa með parketi og góðu skápaplássi. Hol með parketi á gólfi. Þrjú herbergi með parketi á gólfum og góðu skápaplássi. Stofa og eldhús í sama rými með parket á gólfi. Útgengi út úr stofu út á norðaustur svalir með fallegu útsýni til fjalla. Eldhús með fallegri viðarinnréttingu og vönduðum tækjum. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, upphengdu WC og baðkari með sturtu. Þvottahús með flísum á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Í sameign er sér geymsla 7,1 fm ásamt hjóla- og vagnageymslu. Sér stæði í bílageymslu með hleðslustöð fyrir rafmagn.
Þetta er falleg og vel umgengin eign þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttir, verslun og aðra þjónustu.
Nánari upplýsingar veita:
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali, s. 893 1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Oddur Gunnar Jónsson, aðstoðarmaður fasteignasala, s. 820-1717, netfang: oddur@ fasteignaland.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FASTEIGNALAND fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.