LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN 512.4900 KYNNIR:Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 86.6 fm 3ja til 4ra herbergja íbúð á á fimmtu hæð (inngangur á 2.hæð) í nokkuð góðu fjölbýlishúsi á þessum vinsæla stað í vesturbæ Reykjavíkur.Gott útsýni bæði til norðurs og suðurs. Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir ei... Sýna meira
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN 512.4900 KYNNIR:Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 86.6 fm 3ja til 4ra herbergja íbúð á á fimmtu hæð (inngangur á 2.hæð) í nokkuð góðu fjölbýlishúsi á þessum vinsæla stað í vesturbæ Reykjavíkur.Gott útsýni bæði til norðurs og suðurs. Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni og er búið að setja upp rafhleðslustöð í bílkjallara, þvottaaðstaða fyrir bíla er til staðar í bílkjallara.Samkvæmt FMR er íbúðin 86.6 fm og er á tveimur hæðum, efri hæðin er að hluta undir súð þannig að gólfflötur er þó nokkuð stærri en opinberar tölur gefa til kynna. Góð íbúð á vinsælum stað þar sem að stutt er í alla þjónustu.Nánari upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða Íbúð skiptist í:Hol, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi (voru þrjú áður), sjónvarpshol, aðalbaðherbergi, gestasalaerni, sérgeymslu og stæði í bílgeymslu.Sameiginleg hjóla/vagnageymsla á jarðhæð og í kjallara. Sameiginlegt þvottaherbergi.Nánari lýsing:Komið er inní hol og þaðan gengið í alrými sem samanstendur af stofu/borðstofu og eldhúsi. Eldhús er með snyrtilegri viðarinnrétting og eyja, innbyggð uppþvottavél í innréttingu sem að fylgir með í kaupum.Út frá stofu er gengið út á rúmgóðar flísalagðar svalir sem snúa til suðurs með frábæru útsýni.Á hæð er rúmgott svefnherbergi með fataskápum, tveir bjartir þakgluggar.Baðherbergi á neðri hæð er flísalagt á veggjum að hluta, baðkar með sturtuaðstöðu, hvít innrétting undir vask með skúffum og spegla veggskápur, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi í innréttingu, vegghengt salerni.Baðherbergi er nýlega standsett. Á efri hæð er rúmgott svefnherbergi, sjónvarpshol og snyrting. Einnig er geymsluloft yfir hluta af risinu.Sameign er snyrtileg, þar er sameiginleg vagna- og hjólageymsla, sér geymsla og sameiginlegt þvottahús.Stæði í bílageymslu fylgir eigninni og er búið að setja upp rafhleðslustöð við bílastæðiGólfefni íbúðar: Harðparket og flísar á gólfum eignar.-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA