**Bókið einkaskoðun hjá Brynjari í síma 896-1168 eða brynjar@betristofan.is**
Rúmgóð samtals 166,2m² sérhæð með tvennum svölum og bílskúr í fjórbýli á þessum vinsæla stað í Háaleitinu. Möguleiki er á allt að fjórum svefnherbergjum. Stutt er í alla þjónustu, leikskólinn Álftaborg og Álftamýraskóli eru steinsnar frá sem og íþróttasvæði Víkings í Safamýri. Hér má sjá hvað staðsetningin er góð. Öll helsta þjónusta er innan þægilegs göngufæris Gönguskor
Samkvæmt skráningu HMS er birt stærð eignarinnar 166,2m², stærð íbúðarrýmis er 136,7m², bílskúrs er 24,5m² og geymsla í kjallara er skráð 5m².
Nánarí lýsing.Forstofa: Gengið er inn um sérinngang og inn í flísalagða forstofuna.
Herbergi: Við enda forstofu til hægri er rúmgott herbergi með fataskáp og parket á gólfi. Utgengt út á svalir sem snúa inn í garð.
Stofur: Stofa og borðstofa eru samliggjandi í björtu og fallegu rými, nýlegt parket á gólfi. Frá borðstofu er gengið út á rúmgóðar flísalagðar svalir sem eru á suðvestur horni hússins.
Eldhús: Rúmgott eldhús með góðri innréttingu og borðkrók við glugga, tengi fyrir uppþvottavél, nýlegt span helluborð. Nýlegur steinn er á borði innréttingar.
Svefnherbergi: Á herbergjagangi eru á teikningu þrjú herbergi en í dag er búið að sameina tvö herbergi í eitt þannig að í dag eru þar tvö rúmgóð herbergi. Lítið mál er að breyta þessu aftur til baka. Parket á gólfum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og upp á veggi. Baðkar og sturtuklefi, innrétting um handlaug og opnanlegur gluggi.
Gestasnyrting: Innaf forstofu er flísalögð gestasnyrting með glugga.
Þvottahús: Þvottahús er innan íbúðar, skolvaskur og opnanlegur gluggi.
Bílskúr: í bílskúr er bæði heitt og kalt vatn, 3ja fasa rafmagn og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
Sameign: Sér geymsla íbúðar er í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi.
Gott viðhald hefur verið á húsinu. Að sögn eiganda hefur eftirfarandi verið gert s.l 20 ár
2006 Skipt um þakjárn og pappa.
2008 Skipt um salerni og hluta innréttingar á baði.
2009 Þak málað.
2017 Nýr bakstursrofn.
2018 Frárennsli fóðrað.
2018-2020 Raflögn í bílskúr betrumbætt til bílhleðslu, bæði sterkur tengill og hleðslustöð.
2019-2020 hús múrviðgert.
2021 Hús málað utan og útidyratröppur lagfærðar. Dúkklæðning á bílskúrsþaki og útidyraskyggni. Nýtt gólfefni á meiri hluta íbúðar [ Berg Eiche Natur Mammut 12mm frá Birgisson]. Nýtt helluborð , span [Bosch].
2024 Ný borðplata í eldhúsi [Steinprýði] ásamt vaski [Tengi] og krana [HansGrohe].
2025 Skipt um og betrumbættir stærstu og helstu gluggar áveðurs og endurnýjun ofnalagna og ofnakrana.
Nánari uppl.Brynjar Þór Sumarliðason löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í síma 896 1168 - brynjar@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.