Erling Proppé.lgf & REMAX kynna fallegt og vel skipulagt raðhús sem býður upp á mikla möguleika á frábærri staðsetningu miðsvæðis við Sæviðarsund 54, 104 Reykjavík.Sæviðarsund 54 er virðulegt raðhús frá árinu 1967, íbúðarrými og bílskúr 162,5 m2, óinnréttuð efri hæð 68 m2, samtals 230,50 m². Húsið er staðsett í rótgrónu hverfi í Reykjavík og býður upp á björt og rúmgóð rými á aðalhæð með góðri lofthæð, fjórum svefnherbergjum baðherbergi og gestasalerni. Þakinu var lyft fyrir nokkru síðan, í dag er það óklárað og fokhelt, skráð 68 m² að grunnfleti en töluvert stærra að grunnfleti vegna súðar. Þetta rými býður upp á einstök tækifæri til að fullklára og nýta sem viðbótarrými við húsið með tengingu á milli hæða.
Allar nánari upplýsingar veitir Erling Proppé lgf. sími 690-1300 eða erling@remax.isEignin skiptist í björt og opin alrými, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, búr, bílskúr og óinnréttaða efri hæð.AnddyriFlísar á gólfi og góðir fataskápar með hirslum fyrir yfirhafnir.
GestasalerniFlísalagt með hvítum flísum á veggjum og gólfi, með handlaug og salerni.
Herbergi IRúmgott herbergi með aðgengi úr anddyri með dúk á gólfi sem nýst hefur sem skrifstofa, með stórum gluggum, hillum og skápum.
Alrými/sjónvarpsstofaRúmgóð og björt stofa sem nýst hefur sem sjónvarpsrými, parketi á gólfi og viðarklæðning í lofti sem gefur hlýlegt yfirbragð. Stór gluggi sem hleypir mikilli birtu inn.
EldhúsEldhúsið er með eldri en vel hirtrri innréttingu. Ljósgrænir neðri skápar með viðarlistum, hvítir efri skápar og grænar flísar á milli skápa. Ofn með helluborði, pláss fyrir tvo ísskápa, tengi fyrir uppþvottavél og góður borðkrókur. Gluggar veita góða dagsbirtu og útsýni til umhverfisins.
BorðstofaBorðstofa tengist stofunni í opnu rými og er með parketi á gólfi og viðarklæðningu í lofti. Hér er gott pláss fyrir stórt borðstofuborð sem rúmar fjölskyldu og gesti.
Stofa með útgengi út í garðSérlega bjart og notalegt rými með stórum og miklum gluggum sem snúa út í garð. Hér er útgengi út á hellulagða verönd í bakgarði. Parket á gólfi.
Svefnherbergisálma:Svefnherbergi II / HjónaherbergiBjart og rúmgott herbergi með fataherbergi, dúkur á gólfum.
Svefnherbergi IIIBjart herbergi með dúk á gólfi og þreföldum skápum.
Svefnherbergi IVBjart herbergi með dúk á gólfi og þreföldum skápum.
BaðherbergiFlísalagt baðherbergi með sérstæðum bláum flísum með mynstri á veggjum. Innrétting með handlaug, upphengdu salerni, handklæðaofn, baðkari og sturtu.
ÞvottahúsÞvottahús með flísum á gólfi, vaskur, góðir skápar og vinnupláss.
BílskúrEr 22,7 m2, notaður aðallega sem geymsla í dag.
Efri hæð / Óinnréttað rýmiStórt og óklárað rými með frábæru útsýni yfir Faxaflóan og Esjuna er að finna á efri hæð, aðgengi úr bílskúr. Þakinu var lyft fyrir nokkru síðan og er þetta rými skráð 68 m² í heildarfermetrum eignarinnar, þó grunnflötur sé töluvert stærri vegna rýmis undir súð. Það býður upp á mikla möguleika til að innrétta aukarými, t.d. fleiri svefnherbergi og fjölskyldurými með því að opna á milli hæða.
Garður og umhverfiStór og skjólgóður bakgarður með verönd sem snýr í hásuður.
Aðkoma og bílastæðiGóð aðkoma er að húsinu með nægu bílastæðaplássi fyrir framan eignina.
StaðsetningStaðsetningin er afar góð á eftirsóknaverðum stað í Sæviðarsundi við Laugardalinn þaðan sem stutt er í skóla á öllum skólastigum, Íþróttasvæði Þróttar og Ármanns, Laugardalslaug, verslun og þjónustu og alla afþreyingu sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða. Stutt í helstu stofnæðar frá hverfinu.
Seljandi býr ekki lengur í húsinu í dag, umboðsmenn seljanda þekkja því ekki húsið vel og hvetjum við því alla sem skoða til að kynna sér vel ástand fasteignarinnar og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir. Húsið er selt í því ástandi sem það er í í dag. Allar nánari upplýsingar:
Erling Proppé lgf. sími 690-1300 eða erling@remax.isKostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.