Pálsson Fasteignasala kynnir:
Falleg 3ja herbergja íbúð ásamt bílskúr, geymslu og svölum á frábærum stað við Sæviðarsund í Reykjavík. Birt stærð samkv HMS er 103,20m² - Endurnýjað eldhús, baðherbergi, gólfefni. gólfhiti, gluggar, gler, innréttingar, rafmagn, pípulagnir og svalargólf.
- Fjölskylduvæn staðsetning
- Á 2. hæð með svölum
- Bílskúr (25,8m²) og geymsla (8,5m²)
Nánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í S:
775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Orri Hilmarsson astmf. S:6153011 eða orri@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurNánari lýsing:Alrými / stofa og borðstofa: Rúmgóð flísalögð stofa með útgang að svölum með góðu útsýni
Eldhús: Endurgert flísalagt eldhús með fínu skápaplássi, innbyggðum ísskápi, uppþvottavél og innbyggðri þvottavél í eldhúsinnréttingu.
Svefnherbergi : Hjónaherbergi er flísalagt með rennihurð og góðu skápaplássi.
Svefnherbergi 2 : Barnaherbergi er flísalagt sem hægt er að nota sem skrifstofu
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt með baðkari og "walk-in" sturtu, upphengdu klósetti, innbyggðum blöndunartækjum og handklæðisofn.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús
Eignin er staðsett á fjölskylduvænum stað þar sem það er stutt í skóla, frístund ská á móti og leikskóli við hliðina á íbúðinni.
Miklar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni.
-Þak var endurnýjað og klætt með Aluzink árið 2011 og voru þakrennur jafnframt endurnýjaðar sama ár.
-Rafmagn í íbúðinni var endurnýjað og uppfært árið 2018, þar á meðal rafmagnstafla. Rafmagn í bílskúr er upprunalegt og er í lagi.
-Neysluvatnslagnir í íbúð voru endurnýjaðar árið 2018, en ekki í sameign.
-Gluggar hafa verið skiptir út að hluta til.
-Drenlögn meðfram húsinu var endurnýjuð að hluta til árið 2018.
-Stétt fyrir framan hús var endurnýjuð árið 2019.
-Nýlegar sérsmíðaðar innnihurðir.
-Múrviðgerðir á húsinu 2015 og múrviðgerðir að hluta árið 2025
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.