Bókið skoðun í gegnum eða í síma 897-0848 og við sýnum samdægursBjörn Jakob Björnsson, löggiltur fasteignasali hjá BG Legal ehf. fasteignasölu, kynnir í einkasölu: Nýjar og glæsilegar 1 - 4 herbergja íbúðir í lyftuhúsi að Rofabæ 7 - 9 í Árbæ, Reykjavík. Stærðir eru frá 41 – 116 fm. 31 íbúð með 27 ... Sýna meira
Bókið skoðun í gegnum eða í síma 897-0848 og við sýnum samdægursBjörn Jakob Björnsson, löggiltur fasteignasali hjá BG Legal ehf. fasteignasölu, kynnir í einkasölu: Nýjar og glæsilegar 1 - 4 herbergja íbúðir í lyftuhúsi að Rofabæ 7 - 9 í Árbæ, Reykjavík. Stærðir eru frá 41 – 116 fm. 31 íbúð með 27 stæðum í lokaðri bílageymslu. Íbúðirnar skilast fullbúnar, án gólfefna, með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.Frekari upplýsingar um íbúðirnar sem eru í sölu að Rofabæ 7 – 9 má finna á eftirfarandi kynningarsíðu: www.r79.is Íbúð 201 er glæsileg þriggja herbergja íbúð á 2. hæð með stæði í bílakjallara. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 89,4 fm, þar af er geymsla í kjallara 10,5 fm. Útgengt á 11,4 fm svalir. Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan með álklæðningu í tveimur mismunandi litum og gluggar eru úr ál-tré.Helstu atriði við frágang innandyra:Innréttingar frá Voke IIIBorðplötur í eldhúsi eru almennt úr 20 mm þykkum HPL (high pressure laminate) með dökku yfirborði. Á baðherbergjum eru borðplötur úr hvítum Durastone með samlímdum vaski.Eldhústæki frá Electrolux, spanhelluborð, ofn, uppþvottavél, háfur og ísskápur.Gólf baðherbergja og þvottahúsa eru flísalögð með 30 x 60 cm flísum frá Álfaborg.Hvítar Dana innihurðir frá Parka.Hús klætt að utan með vandaðri báruálklæðningu frá Límtré Vírnet.Gluggar og svalahurðir eru úr ál-tré frá Húsasmiðjunni. Allt gler er K gler.Öll blöndunartæki eru frá Grohe – söluaðili er Byko. Nánari lýsing:Anddyri: Fataskápur upp í loft.Eldhús/stofa: Falleg innrétting með spanhelluborði, innfelldur ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn. Útgengt út á svalir frá rýminu.Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Opið og bjart rými. Útgengt út á svalir.Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskáp upp í loft. Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, innrétting undir og við handlaug, handklæðaofn.Svalir: Útgengt er út á 11.4 fm. svalir.Geymsla: Er í sameign í kjallara 10,5 fm.Sameign: Í sameign í kjallara er hjóla- og vagnageymsla. Einnig hjólageymsla í porti norðan megin við húsið. Almennt um fasteignina:Fjölbýlishúsið við Rofabæ 7-9 er staðsett í Árbæ í Reykjavík. Við hliðina á húsinu er útivistar- og leiksvæði sem eru skilgreind þannig í hverfisskipulagi sem var samþykkt árið 2020. Stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu og í útvistaparadísina í Elliðárdalnum. Rofabær verður „borgargata” Reykjavíkur samkvæmt hverfisskipulagi. Byggingin er stölluð, þ.e. 2, 3 og 4 hæðir með 31 íbúðum. Á öllum hæðum eru íbúðir af fjölbreyttum stærðum og gerðum, þ.á.m. svokallaðar smáíbúðir sem eru eins og tveggja herbergja. Einnig eru vel skipulagðar þriggja herbergja íbúðir í vesturenda byggingarinnar og 5 atvinnubil á jarðhæð. Eitt stiga- og lyftuhús er í byggingunni og hafa íbúðir beint aðgengi frá stiga- og lyftuhúsi. Í kjallara hússins er sameiginleg bílgeymsla með bílastæðum fyrir 27 bifreiðar. Að auki eru í kjallara sérgeymslur fyrir allar íbúðir ásamt stórri vagna- og hjólageymslu og sameiginlegum tæknirýmum. Þá verður hjólaskýli í porti norðan megin. Sameiginlegur þakgarður verður á 4. hæð og sérþakgarður fyrir þrjár íbúðir á 3. og 4. hæð. Aðalinngangur er staðsettur á 1. hæð. Eingöngu er notast við fyrsta flokks efni bæði innan- sem og utandyra. Léttir innveggir íbúða eru hlaðnir. Umhverfið:Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Árbærinn liggur við Elliðaárdalinn sem er eitt stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins með fjölmörgum göngu- og hjólastígum. Mikið trjálendi liggur meðfram ánni með mörgum fallegum stöðum eins og Elliðaárfoss. Góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar.Stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu. Þá er næsta lóð við hliðina skilgreind sem leiksvæði bæði í aðal- og hverfisskipulagi Reykjavíkurborgar. Rofabær verður “borgargata” Reykjavíkur samkvæmt hverfisskipulagi. Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á fasteignina.Frekari upplýsingar veita:Björn Jakob BjörnssonLöggiltur fasteignasali eða 897-0848