Domusnova hefur fengið í einkasölu góða 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð í 6 íbúða blokk við Rjúpnasali. Íbúðin er skráð 120,1fm skv. Þjóðskrá og er mjög rúmgóð og falleg með útsýni til suðurs og vesturs úr stofu og af rúmlega 11fm svölum og til norðurs úr eldhúsi. Parket er á gólfum nema á baðherber... Sýna meira
Domusnova hefur fengið í einkasölu góða 4ra herbergja íbúð á þriðju hæð í 6 íbúða blokk við Rjúpnasali. Íbúðin er skráð 120,1fm skv. Þjóðskrá og er mjög rúmgóð og falleg með útsýni til suðurs og vesturs úr stofu og af rúmlega 11fm svölum og til norðurs úr eldhúsi. Parket er á gólfum nema á baðherbergi, þvottahúsi og eldhúsi. Stutt er í þjónustu, leikskóla og skóla. Eignin getur verið laus fljótlega.Þegar komið er inní íbúðina er rúmgóð stofa á vinstri hönd, herbergjagangur beint af augum og eldhús til hægri. Útgengt er á suðursvalir úr stofu. Inn herbergjaganginn verður fyrst fyrir þvottahús á hægri hönd en síðan rúmgott hjónaherbergi næst því. Tvö barnaherbergi og baðherbergi eru til vinstri við ganginn. Sama parket á stofu og herbergjum auk herbergjagangs, flísar eru á gólfi við inngang í íbúðina og er þar góður fataskápur.Eldhús er með góðri innréttingu og flotuðu gólfi, ágætis borðkrókur.Stofa/borðstofa er með parketi og er útgengt á svalir sem eru flísalagðar og er gott útsýni til suðurs og vesturs af þeim.Hjónaherbergið er rúmgott, skráðir 16,2fm, parket á gólfi, fataskápur.Tvö barnaherbergi með parketi á gólfi og er fataskápur í báðum herbergjum.Baðherbergið er flísalagt hátt uppá vegg og er baðkar og sturtuaðstaða og ágætis innrétting. Opnanlegt fag.Þvottahús er flísalagt, þar er innrétting með vaski og þurrkaðstaða. Opnanlegt fag.Geymsla, 8,2 fm skv. Þjóðsskrá, er í sameign og auk þess er þar hjóla og vagnageymsla.Stigagangar og sameiginleg rými eru vel um gengin og líta vel út.Nánari upplýsingar veita:Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / Snorri B. Sturluson löggiltur fasteignasali / lögmaður / s. 699-4407 / Skrifstofa / s.527-1717 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.