LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / andri@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:Um er að ræða
glæsilegt og vel viðhaldið einbýlishús á tveimur hæðum ásamt tvöföldum bílskúr við Rjúpnahæð 4 á eftirsóttum stað í Garðabænum. Eignin er skráð skv HMS 249,6 fm og skiptist þannig að neðri hæðin er 124 fm, efri hæðin er 78,7 fm og bílskúrinn 46,9 fm. Þetta er virkilega vel hannað og rúmgott fjölskylduhús á frábærum stað þar sem stutt er í leikskóla, skóla, framhaldsskóla og íþróttastarf. Húsið er byggt 1993 og hefur fengið gott viðhaldið síðastliðin ár. Fyrir um átta árum síðan var húsið endurnýjað að mestu að innan t.a.m. var rafmagnið endurnýjað, gegnheilt rauðeikarparket slípað og lakkað, innihurðir endurnýjaðar, eldhús og baðherbergi tekin í gegn ásamt því að skipt var um ofna. Innréttingar frá Smíðaþjónustunni prýða bæði eldhús og baðherbergi og kvartsteinn á borðplötum. Gluggar og hurðar eru úr harðviði. Hitalögn í plani var endurnýjuð og settur forhitari. Mikil lofthæð á efri hæð hússins og gerir alrýmið bjart og glæsilegt. Í dag eru þrjú rúmgóð svefnherbergi í húsinu en með einföldum hætti er mögulegt að útbúa fjórða svefnherbergið ef þörf krefur. Golfhermir í bílskúrnum sem gæti mögulega fylgt með í kaupunum. Allar gardínur og gluggatjöld fylgja með í kaupunum.
Nánari lýsing efri hæðar: Komið er inn í
forstofu með fataskáp. Innaf forstofunni er
snyrting með flísum á gólfi og glugga. Á hægri hönd frá forstofu er sérlega
glæsilegt eldhús með sérsmíðuðum innréttingu sem var hönnuð af Rut Káradóttir innanhússarkitekt og vönduðum Miele heimilistækjum, vínkæli og góðu vinnuplássi. Björt og
rúmgóð stofa og
borðstofa. Fallegur arinn í stofu og frá borðstofu er gengið út á svalir og þaðan út í skjólgóðan og fallegan garð.
Nánari lýsing neðri hæðar: Komið er á
parketlagðan gang neðri hæðar.
Sjónvarpsherbergi sem væri hægt að nýta sem fjórða svefnherbergið.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi og frá tveimur herbergjanna er útgengt. Eitt af þessum þremur svefnherbergjum er með sérinngang. Mjög stórt
fataherbergi. Glæsilegt
baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf, Walk-in sturta, gólfhiti, gluggi.
Þvottahús með nýlegri innréttingu með skolvask og flísum á gólfi.
Fallegur garður í mikilli rækt með skjólgóðu og fallegu útisvæði með timburpalli sem snýr í hásuður með heitum potti. Snyrtilegur tvöfaldur bílskúr með epoxy á gólfi, hvítri innréttingu og geymslulofti sem nýtir rýmið einstaklega vel. Garðurinn var tekinn í gegn fyrir um sjö árum síðan og skipt um hellur, tréverk og handrið á svölum og stigi af efri hæð niður í garð endurnýjaður.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á grónum og fallegum stað í Garðabænum.
Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma
690 3111 eða
andri@landmark.is Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat