BYR fasteignasala kynnir í einkasölu REYNIVELLIR 4, Egilsstaðir. Fjögurra herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr í grónu hverfi við lítinn botnlanga.
Góð staðsetning á vinsælum stað á Egilsstöðum, vel skipulagt fjölskylduhús. Stutt í alla almenna þjónustu s.s. skóla og íþróttamiðstöð og útivistarsvæði. Húsið er byggt árið 1971 með bílskúr byggðum árið 1977. Stærð íbúðar 113.0 m², bílskúrs 30.0 m² samtals 143.0 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, eldhús, stofa og borðstofa, gangur, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús og bílskúr.
Nánari lýsing: Anddyri, fatahengi er innaf anddyri. Föst kommóða í andyri.
Eldhús, með Brúnás innréttingu og eyju. Spanhelluborð í eyju, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Stofa og borðstofa eru í samliggjandi rýmum. Upptekið loft er í stofu og borðstofu, nýbúið að skipta um loftaplötur, einangrun og lýsingu í stofu. Útgengt er úr stofu út á timburverönd til suðurs,.
Gangur liggur frá anddyri að öðrum rýmum eignarinnar, innbyggð lýsing er á gangi.
Svefnherbergin eru þrjú.Hjónaherbergi er með sexföldum Brúnás fataskápum yfir heilan vegg.
Barnaherbergin eru tvö, bæði með einföldum fataskáp.
Baðherbergi er nýlega endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf. Rúmgóð vaskinnrétting, speglaskápur, sturta með innbyggðum tækjum, vegghengt salerni, handklæðaofn. Útgengt er úr baðherbergi á hellulagða verönd til suðurs.
Gestasalerni, vegghengt salerni, handlaug á innréttingu, speglaskápur.
Þvottahús, er innaf eldhúsi, rúmgóð innrétting með hækkun fyrir tvær vélar öðru megin í rýminu og búrinnrétting með vinnubekk hinu megin í rýminu. Rafmagnstafla, gluggar.
Bílskúr, þar er gömul Brúnás innrétting, gryfja er í bílskúr, hefur verið notuð sem geymsla. Gönguhurð er á bílskúrshurð, útgengt er úr bílskúr út í bakgarð um gönguhurð á hlið hans. Hitamælir er í bílskúr.
Gólfefni: Harðparket á stofu, borðstofu, gangi og svefnherbergjum. Flotað og lakkað gólf á eldhúsi, Flísar á baðherbergi og þvottahúsi. Gólf í bílskúr eru epoxymáluð.
Allar innréttingar í eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi og fataskápur í hjónaherbergi eru frá Brúnás.
Húsið er steypt á einni hæð. Lóð er fullfrágengin. Hellulagt bílaplan og aðkoma/stétt er að húsi. Lóðin er gróin, timburverönd með skjólveggjum er að sunnanverðu á lóð, hellulagt er fyrir aftan bílskúr.
Lóðin er 690,0 m², leigulóð frá Múlaþingi, lóðarleigusamningur til 50 ára frá 1.2.2024.
Húsið var málað að utan sumarið 2023.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS.Stærð: Íbúð 113.0 m². Bílskúr 30.0 m².
Brunabótamat: 73.400.000 kr.
Fasteignamat: 61.100.000 kr.
Byggingarár: Íbúð 1971. Bílskúr 1977.
Byggingarefni: Steypa
Gjöld er kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi
- 0.8% af fasteignamati, u.þ.b. kr. 488.800.-
- 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða u.þ.b. kr. 244.400.-
- 1.6% fyrir lögaðila u.þ.b. kr. 977.600.-.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali s.s. kaupsamning, veðskuldabréfi, veðleyfi, afsali o.fl. kr. 3.800,- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá heimasíður lánastofnana.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.-, með vsk.
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir leita sér sérfræðiaðstoðar um nánari skoðun um ástand eignar.Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak o.s.frv.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Drífa Einarsdóttir, hefur lokið námi til fasteignasala - drifa@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala